Beint í efni
Til baka í yfirlit

Út­keyrslu­ramp­ur úr bíla­kjall­ara Hamra­borgar við Valla­tröð lok­ast tíma­bund­ið vegna fram­kvæmda

Útkeyrslurampur úr bílakjallara Hamraborgar út á Neðstutröð lokast tímabundið frá 29. júlí til um það bil 15. ágúst vegna breytinga.

Eftir breytingar verður keyrt beint út á Vallatröð en ekki út á Neðstutröð eins og áður. Jafnframt verður sett snjóbræðslukerfi í rampinn og malbik endurnýjað. Inn- og útakstur í bílakjallara verður að vestanverðu í gegnum bensínstöð ÓB neðan við Hamraborg 12. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem af lokuninni kann að verða.