Beint í efni
Til baka í yfirlit

Nið­ur­rif á Trað­ar­reit vest­ari að hefj­ast

Verktakinn Jáverk hefur fengið leyfi Kópavogsbæjar til að hefja niðurrif á Traðarreit vestari. Á næstu dögum verða húsin á reitnum rifin. Efni verður síðan flokkað og flutt burt.

Traðarreitur

Rétt er að taka fram að úttektir á húsunum vegna asbestmengunar hafa verið gerðar og fundust engin merki um slíka mengun, og að engar sprengingar hefjast á Traðarreit vestari að svo stöddu.

Allar upplýsingar um framkvæmdir í miðbæ Kópavogs er að finna á upplýsingavefnum Miðbær í mótun.