Samstarf um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið
Skrifað var undir nýjan þriggja ára samning til áranna 2026-2028 um samstarf um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið á aðalfundi SSH þann 14. nóvember.

Skrifað var undir nýjan þriggja ára samning til áranna 2026-2028 um samstarf um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið á aðalfundi SSH þann 14. nóvember.
Sveitarfélögin Garðabær , Hafnarfjörður , Kópavogsbær, Mosfellsbær , Reykjavíkurborg, Seltjarnarnes og Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins skrifuðu undir nýjan þriggja ára samning til áranna 2026-2028 um samstarf um áfangastaðinn höfuðborgarsvæðið á aðalfundi SSH sem haldinn var föstudaginn 14. nóvember í Garðaholti í Garðabæ. Markaðsstofa höfuðborgarsvæðisins (Visit Reykjavík) var stofnuð árið 2023 og hefur nú fest sig í sessi í samstarfi aðila á höfuðborgarsvæðinu. Stofan er markaðs - og áfangastaðastofa höfuðborgarsvæðisins og er samstarfsvettvangur sveitarfélaganna , stjórnvalda og atvinnugreinarinnar á svæðinu þegar kemur að ferðamálum . Nú eru um 200 samstarfs - og aðildarfélagar að stofunni og sífellt bætast fleiri í hópinn . Markmið áframhaldandi samnings er að þróa og markaðssetja áfangastaðinn sem heild en sérstök áhersla er lögð á að efla atvinnustarfsemi og auka gjaldeyristekjur með sjálfbærni að leiðarljósi . Helstu áherslur samningsins snúa að því að efla vitund og þekkingu um áfangastaðinn , þróa , móta og efla samstarf og samlegð um málefni ferðaþjónustunnar á höfuðborgarsvæðinu milli sveitarfélaga, atvinnulífs , stjórnvalda og stoðkerfisins . Einnig að efla samkeppnishæfni og slagkraft áfangastaðarins í alþjóðlegu samhengi . Áfram er unnið að því að stuðla að sátt íbúa , atvinnulífsins og sveitarfélaga um málefni ferðaþjónustunnar og styrkja stoðir og uppbyggingu hennar ásamt því að auka eftirspurn eftir fjölbreyttri þjónustu og atvinnustarfsemi . Markaðsstofan annast almennt þróunar - og markaðsstarf ásamt því að vera málsvari og samnefnari fyrir ferðaþjónstuna á höfuðborgarsvæðinu. „ Það er afar ánægjulegt að það sé kominn áframhaldandi samningur um þróun og markaðssetningu á áfangastaðnum höfuðborgarsvæðinu. Samningurinn markar næstu skref um samstarfið og styrkir sameiginlega sýn okkar um að kynna og efla höfuðborgarsvæðið á bæði innlendum og erlendum vettvangi með skýrum markmiðum og sameiginlegum verkefnum ,“ segir framkvæmdastjóri Markaðsstofu höfuðborgarsvæðisins , Inga Hlín Pálsdóttir


