Beint í efni
Til baka í yfirlit

Tendr­að á jóla­stjörn­unni á Háls­a­torgi

Börn úr leikskólanum Kópavoghvoli og Barnaskóla Kársness sungu og dönsuðu í kringum jólastjörnuna á Hálsatorgi þegar tendrað var á henni í morgun, 20.nóvember.

Jólastjarnan á Hálsatorgi 2026
Dansað í kringum jólastjörnuna á Hálsatorgi 20.nóvember 2026.

Tendrað var á jólastjörnunni á Hálsatogi í Kópavogi í morgun, föstudaginn 20.nóvember. Börn úr leikskólanum Kópahvoli og Barnaskóla Kársness sungu nokkur jólalög undir stjórn Þóru Marteinsdóttur og töldu svo niður áður en ljósin á stjörnunni voru kveikt. Að því loknu dönsuðu þau í kringum stjörnuna og sungu jólalög.

Þetta er í áttunda skipti sem stjarnan prýðir Hálsatorg og veitir fallega lýsingu á svæðinu, til gleði fyrir gangandi og akandi vegfarendur.

Uppsetning jóla- og skammdegisljósa er nú langt komin hjá Kópavogsbæ, og lokahnykkurinn verður þegar tendrað er á jólatré bæjarins á Aðventuhátíð Kópavogsbæjar.

Tendrun stjörnunnar er orðinn fastur liður í jólaundirbúningi bæjarins og er upptaktur að Aðventuhátíð Kópavogs sem fer fram 28.nóvember.