Beint í efni
Til baka í yfirlit

Þing­manna­leið lokuð að hluta 9.júní

Þriðjudaginn 9. júní frá kl. 9:00 til 15:00 verður Þingmannaleið milli Vatnsendavegar og Aðalþings lokuð vegna malbiksframkvæmda. Hjáleið um Vallakór (meðfram Kórnum).

Lokun Þingmannaleið
Lokun í Þingmannaleið.

Þriðjudaginn 9. júní frá kl. 9:00 til 15:00 verður Þingmannaleið milli Vatnsendavegar og Aðalþings lokuð vegna malbiksframkvæmda. Hjáleið um Vallakór (meðfram Kórnum). Aðkoma að Aðalþing og Ásaþing lokast alveg og eru íbúar beðnir um að huga að því að sinna erindum utan framkvæmdatímans ef þess er nokkur kostur eða leggja bílum sínum Fagraþing 2a. Foreldrar og forráðamenn barna á leikskólanum Aðalþing eru beðnir um nýta bílaplan við Fagraþing 2a (fríkirkjan Kefas) og nota göngustíg til að komast til og frá leikskóla á meðan framkvæmdum stendur. Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.