Beint í efni
Til baka í yfirlit

End­ur­bæt­ur á gatna­mót­um Ný­býla­vegar, Ás­túns og Þver­brekku

Framkvæmdir við endurbætur á gatnamótum Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku í Kópavogi hefjast 15. september.

Framkvæmdir við endurbætur á gatnamótum Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku í Kópavogi hefjast 15. september. Verkið er samstarfsverkefni Vegagerðarinnar og Kópavogsbæjar og er áætlaður verktími þrír til fjórir mánuðir.

Framkvæmdin felur í sér breytingar á gatnamótunum með það að markmiði að bæta útfærslu þeirra og auka öryggi óvarða vegfarenda.

Þrjú hægribeygju framhjáhlaup við gatnamótin verða aflögð og breytingar gerðar á miðeyjum. Sett verða upp ný umferðarljós og ný umferðarljósastýring. Þá verður lagður nýr göngustígur meðfram Nýbýlavegi, neðan við bílaplan við Þverbrekku 2.

Framkvæmdasvæðið nær yfir gatnamót Nýbýlavegar, Ástúns og Þverbrekku. Gera má ráð fyrir að framkvæmdirnar hafi áhrif á umferð um svæðið meðan á þeim stendur og eru vegfarendur hvattir til að sýna aðgát og fylgja merkingum á framkvæmdasvæðinu. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem af framkvæmdunum kann að hljótast.