Beint í efni
Til baka í yfirlit

Bilun hjá Microso­ft

Uppfærsla kl. 11.48 - kerfið virðist vera komið í lag núna.

Tölvupóstkerfi Microsoft hefur verið að mestu óvirkt síðan kl. 16:20 þann 12. nóvember og hefur Microsoft unnið að bilunargreiningu og lagfæringum síðan þá.

Bilunin er umfangsmikil og hefur áhrif á notendur Microsoft 365 víðs vegar um heiminn. Notendur geta átt í erfiðleikum með að opna Outlook, nálgast tölvupóst eða senda og taka á móti tölvupósti. Microsoft er að vinna að lausn en enn liggur þó ekki fyrir hvenær þjónustan verður komin að fullu í lag.

Þangað til hvetjum við fólk til að hafa samband símleiðis í þjónustuverið í síma 441 0000.