Beint í efni
Til baka í yfirlit

End­ur­nýjun á mal­biki á Helgu­braut

Fimmtudaginn 17. september frá kl. 9:00 er ráðgert að hefja framkvæmdir á endurnýjun malbiks á Helgubraut.

Fimmtudaginn 17. september frá kl. 9:00 er ráðgert að hefja framkvæmdir á endurnýjun malbiks á Helgubraut. Núverandi malbik er alveg ónýtt og þarf að fjarlægja það af götunni niður í burðarlag og setja svo nýtt malbik á.

Um er að ræða talsverða framkvæmd þar sem allt malbik verður fræst í burtu með malbiksfræsara svo eftir stendur malargata. Í kjölfarið verður lagt út jöfnunarlag undir malbik og að endingu nýtt malbikslag. Talsverð óvissa er með burðarhæfni götunnar og mögulega þarf að fjarlægja óburðarhæft efni áður en jöfnunarlag er sett yfir.

Áætlað er að verklok gætu orðið í lok mánudags 21. september ef veður leyfir.

Reynt verður eftir besta megni að halda aðgengi að húsum eins góðu og kostur er en framkvæmdin er þess eðlis að aðgengi mun skerðast frá því sem nú er. Bent er á bílastæði við leikskólann Marbakka ef aðgengi um götuna verður lokað. Fjarlægja skal alla bíla, ferðavagna, kerrur eða aðra lausafjármuni af götunni og bílastæðum við götuna fyrir fimmtudaginn 17. september kl. 9:00.

Tafir geta orðið við gatnamót Helgu-, Marbakka- og Sæbólsbrautar á meðan vinnuvélar og vörubílar eru að athafna sig, en gatnamótunum verður ekki lokað. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.