Endurnýjun malbiks og lagfæringar á gatnamótum í Hjallabrekku

Á næstu vikum verða gerðar lítilsháttar breytingar á gatnamótum Hjallabrekku þar sem húsagata mætir tengiveg. Gangstéttarkantur verður færður lítilsháttar neðar í brekkuna til að rýma fyrir nýrri og breiðari gangstétt, sett verður upphækkuð gangbraut milli hús nr. 2 og grenndargámastöðvar og malbik á götunni verður endurnýjað milli Nýbýlavegar og Laufbrekku. Markmiðið með breytingunum er að auka öryggi gangandi vegfarenda og draga úr umferðarhraða í húsagötuhluta Hjallabrekku þar sem ökutæki á leið austur götuna hafi ekki beina greiða línu beint áfram götuna. Sjá nánar á skýringarmynd hér til hliðar. Við endurnýjun malbiks munu verða götulokanir sem munu hafa áhrif á aðgengi að götunni. Þær framkvæmdir verða kynntar sérstaklega áður en að þeim kemur.