Endurnýjun yfirborðs í Hábraut og við Gerðarsafn

Framkvæmdir á vegum Betri samgangna eru hafnar við endurnýjun yfirborðs á efri hluta Hábrautar og vestari hluta Hamraborgar við Gerðarsafn og Salinn.
Við framkvæmdina verða lagðir aðgreindir göngu- og hjólastígar sitt hvoru megin gatnanna. Stígarnir munu tengjast nýjum stígum sem lagðir verða við Ásbraut næsta sumar.
Jafnframt verða gerðar nýjar gangbrautir við Hábraut og Hamraborg. Bílastæði neðan við safnaðarheimili Kópavogskirkju og við leikskólann Kópastein verða sameinuð og þeim fjölgað lítillega.
Framkvæmdirnar verða áfangaskiptar. Í fyrsta áfanga verður unnið við gatnamót Hábrautar og Ásbrautar og verður þeim lokað á meðan á framkvæmdum stendur. Aðkoma að Ásbraut verður um hjáleið um botnlanga Hraunbrautar og aðkoma um Hábraut frá Kársnesbraut.
Áætlað er að vinna við seinni áfanga í Hamraborg hefjist um miðjan október. Samhliða því verða gatnamót Hábrautar og Ásbrautar opnuð á ný.
Ökumenn eru vinsamlegast beðnir um að virða hámarkshraða á framkvæmdasvæðinu, sem er 30 km/klst.
Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda.