Lokun Vatnsendahvarfs við Vatnsendaveg
Önnur akrein lokuð í átt að Breiðholtsbraut

Vegna lagningu hitaveitu er nauðsynlegt að þrengja hringtorg og lækka hámarkshraða í 30 km/klst. á Vatnsendaveg við Vatnsendahvarf og loka fyrir umferð frá Vatnsendavegi að Vatnsendahvarfi frá mánudag 2. nóvember kl. 9:00 til föstudags 6. nóvember kl. 16:00. Hjáleið er um Vatnsendaveg og Urðarhvarf.
Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.