Beint í efni
Til baka í yfirlit

Frá­gang­ur við ramp aust­an meg­in við Hamra­borg á loka­metr­un­um

Unnið er að lokafrágangi við útkeyrsluramp austan megin við Hamraborg við Vallatröð og er gert ráð fyrir að framkvæmdum ljúki á næstu dögum.

Unnið er að lokafrágangi við útkeyrsluramp austan megin við Hamraborg við Vallatröð og er gert ráð fyrir að framkvæmdum ljúki á næstu dögum.

Framkvæmdirnar hafa tekið lengri tíma en upphaflega var áætlað. Á framkvæmdatímanum komu upp nokkur atriði sem höfðu áhrif á framvindu verksins. Meðal annars reyndist nauðsynlegt að endurnýja vatnslagnir sem lágu dýpra en gert hafði verið ráð fyrir og voru jafnframt staðsettar undir stoðvegg. Það gerði verkið bæði flóknara og umfangsmeira en upphafleg áætlun gerði ráð fyrir.

Jafnframt þurftu Veitur að endurnýja bæði hitaveitu- og raflagnir á svæðinu samhliða framkvæmdinni. Sú vinna var ekki hluti af upphaflegri verkáætlun og hafði áhrif á tímasetningar verkefnisins.

Auk þess komu upp tæknileg úrlausnarefni við tengingar hitaveitu og rafmagns inn í byggingarnar sem kröfðust frekari útfærslu á staðnum.

Þrátt fyrir þessar tafir hefur verið unnið markvisst að því að ljúka framkvæmdunum eins fljótt og kostur er. Ef allt gengur samkvæmt áætlun verður rampurinn opnaður aftur til umferðar á næstu dögum.

Kópavogsbær þakkar íbúum, fyrirtækjum og öðrum vegfarendum fyrir sýndan skilning og þolinmæði meðan á framkvæmdunum hefur staðið.