Heitavatnslaust í stórum hluta Kópavogs í dag milli 9.00 og 17.00
Vegna viðgerðar er heitavatnslaust í stórum hluta Kópavogs í dag frá klukkan 09.00 til klukkan 17.00
Sjá nánar á heimasíðu Veitna www.veitur.is
Til að lágmarka hættu á slysum eða tjóni þegar heita vatnið kemst á aftur er mælt með að skrúfa fyrir alla heitavatnskrana. Húseigendur eru hvattir til að yfirfara innanhússkerfi sín og tryggja að allt sé í lagi áður en vatnsflæðið hefst að nýju.
Kær kveðja,
starfsfólk Veitna
Þjónusturáðgjöf okkar er opin alla virka daga kl. 9:00 - 16:00 og neyðarsími allan sólarhringinn í síma 516 6161
Þú getur einnig sent okkur línu hér.