Lokun á Rjúpnavegi 12. október
Vegna malbiksframkvæmda er Rjúpnavegur lokaður 12. október frá kl. 9:00 til 18:00

Mánudaginn 12. október frá kl. 9:00 til 18:00, áformar verktaki að ljúka við malbikun á hringtorgi á mótum Arnarnesvegar og Rjúpnavegar ef veður leyfir, sem mun orsaka að nauðsynlegt er að loka Rjúpnavegi á milli Álmakórs/Kóravegar og Arnarnesvegar. Aka þarf um hjáleið á Vatnsendavegi og Arnarnesvegi á meðan lokun stendur.
Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.