Önnur akrein Digranesvegar lokuð 12. til 21. október
Önnur akrein Digranesvegar lokar vegna tengingar fráveitu 12. til 21. október.

Vegna tengingar á veitulögnum verður nauðsynlegt að loka akrein til vesturs á Digranesvegi milli Neðstutraðar og Vallartraðar frá mánudeginum 12. október kl. 8:00 til miðvikudagsins 21. október kl. 17:00. Hjáleiðir eru um Álfhólsveg og Hlíðarveg. Sjá lokunar- og skiltaáætlun.

Digranesvegur lokaður við Vallartröð. Hjáleið um Álfhólsveg eða Hlíðarveg.

Digranesvegur lokaður við Vallartröð. Hjáleið um Álfhólsveg.