Rjúpnavegur að lokaður að hluta 8.júní
Mánudaginn 8. júní frá kl. 9:00 til 13:00 verður Rjúpnavegur milli Kóravegs og Vatnsendavegs lokaður vegna malbiksframkvæmda.

Mánudaginn 8. júní frá kl. 9:00 til 13:00 verður Rjúpnavegur milli Kóravegs og Vatnsendavegs lokaður vegna malbiksframkvæmda. Hjáleið er um Kóraveg á meðan framkvæmdum stendur. Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.
----