Tímabundin lokun á akrein á Digranesvegi
Akrein til vesturs á Digranesvegi lokuð milli Neðstu- og Vallartraðar

Vegna vinnu við veitulagnir í Digranesvegi milli Neðstutraðar og Vallatraðar verður akrein til vesturs lokuð frá og með 12. október til og með 21. október. Jafnframt verður gönguleið norðan megin á milli Neðstu- og Vallartraðar lokuð og er gangandi umferð beint á gangstéttar sunnan megin á Digranesvegi. Fyrir akandi er bent á hjáleiðir um Álfhólsveg eða Hlíðarveg á meðan framkvæmdum stendur. Akrein til austurs verður áfram opin en aka skal með gát fram hjá framkvæmdasvæðinu. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem af framkvæmdunum kann að hljótast.