Beint í efni
Til baka í yfirlit

Vík­ur­hvarf og Urð­ar­hvarf lok­að við Vatns­enda­hvarf 2. sept­em­ber

Miðvikudaginn 2. september verður önnur akrein Vatnsendahvarfs lokuð vegna malbiksframkvæmda. Umferð á leið upp Vatnsendahvarf verður beint inn á Urðarhvarf og ekki verður hægt að taka vinstri beygju af Vatnsendahvarfi inn á Víkurhvarf og Urðarhvarf. Einnig verður lokað fyrir umferð af Víkurhvarfi og Urðarhvarfi inn á Vatnsendahvarf. Akrein niður Vatnsendahvarf verður opin en akreinin verður þrengd og hámarkshraði lækkaður í 30 km/klst. Bent er á hjáleið um Vatnsendaveg á meðan lokun stendur.

Umferð gangandi og hjólandi helst óskert en sýna þarf aðgát þar sem farið er um í nágrenni við vinnuvélar. Beðist er velvirðingar á þeim óþægindum sem framkvæmdirnar kunna að valda og eru allir vegfarendur óháð fararmáta beðnir um að sýna tillitssemi, halda hraða í hófi og virða merkingar.