Úthlutun í leikskóla fyrir haustið 2026
Úthlutun leikskólaplássa fyrir börn sem fædd eru í júní 2025 eða fyrr hefst 9. mars næstkomandi og stendur fram í apríl.

Úthlutun fyrir skólaárið 2026 - 2027 hefst 9. mars næstkomandi og stendur fram í apríl. Gert er ráð fyrir að börn sem fædd eru í júní 2025 eða fyrr fái úthlutun.
Umsóknarfrestur: Umsóknir sem berast eftir 5. mars fara á bið/frystingu á meðan úthlutun stendur yfir.
Sótt er um leikskóla hér: https://umsokn.vala.is
Nýr leikskóli við Skólatröð Unnið er að uppbyggingu nýs leikskóla við Skólatröð og stefnt er að því að starfsemi hefjist áramótin 2026/2027 . Þar verða leikskóladeildir fyrir um 60 börn , sem mun styrkja leikskólastarf í bænum til framtíðar.
Athugið - Börn þurfa hafa lögheimili og vera búsett í Kópavogi til að geta fengið úthlutað leikskólapláss í Kópavogi.

