Útskrifuðust sem leikskólakennarar samhliða vinnu
Útskrift átta nýrra leikskólakennara sem starfa í leikskólum Kópavogs var fagnað á dögunum en öll hafa þau lagt stund á nám samhliða vinnu í leikskólum bæjarins.

Útskrift átta nýrra leikskólakennara sem starfa í leikskólum Kópavogs var fagnað á dögunum en öll hafa þau lagt stund á nám samhliða vinnu í leikskólum bæjarins. Alls voru 45 úr starfsliði leikskóla í Kópavogi í námi í leikskólakennarafræðum í vetur við Háskóla Íslands og Háskólann á Akureyri og fengu námsstyrki hjá bænum.
Góður árangur hefur verið af stefnu Kópavogsbæjar um námsstyrki og hefur hlutfall leikskólakennara aukist til muna. Frá árinu 2014 hafa á annað hundrað lokið námi með námsstyrkjum frá Kópavogsbæ og hafið störf í leikskólum bæjarins. Einnig má þess geta að Kópavogsbær styrkir leiðbeinendur til þess að sækja sér menntun leikskólaliða, sem er starfstengt nám á framhaldsskólastigi.
Kópavogsbær státar nú af því að 36% starfsmanna eru leikskólakennaramenntaðir, sem er hæsta faghlutfall í leikskólum á höfuðborgarsvæðinu. Að auki hafa um 17% starfsmanna aðra háskólamenntun sem nýtist vel í starfi með börnum. Þar má nefna til dæmis ýmsa listtengda menntun, íþróttafræði, sálfræði og uppeldis – og menntunarfræði sem auðgar mjög starfið í leikskólunum.
Nánar um námsstyrki
Eftir þriggja mánaða starf í leikskóla er unnt að óska eftir stuðningi leikskólastjóra til að sækja um nám í leikskólakennarafræðum. Sótt er um grunnnám í leikskólakennarafræði eða meistaragráðu ofan á aðra háskólagráðu. Styrkurinn felst í því að starfsfólk getur verið fjarri vinnu vegna skólasóknar eða vettvangsnáms í allt að 35 daga á skólaárinu, skólagjöld eru greidd og veittur er námsgagnastyrkur. Einnig er styrkt nám leiðskólaliða, með greiðslu skólagjalda og námsgagna auk veglegrar eingreiðslu til hvatningar við lok náms ásamt því að veita svigrúm á vinnutíma vegna vettvangsnáms.
Næsta vetur verða tæplega fimmtíu nemar úr Kópavogi sem stunda nám við HÍ, HA og LHÍ.


