Kópavogsdalur og Kópavogstún
Þessi gönguhringur, sem er um 3,5 km langur, er beggja megin Hafnarfjarðarvegar og liggur um tvö af vinsælustu útvistarsvæðum Kópavogs; Kópavogsdalinn og Kársnesstíginn.
Þó má segja að á þessum stutta hring fáum við sýnishorn af svæðunum þar sem þau teygja sig bæði til austurs og vesturs.

Nánari upplýsingar um gönguleið
Lengd: 3,5 km
Erfiðleiki: Létt
Tími: 1 klst
Hækkun: 10 m
Undirlag: Malbikaðir stígar, möl og trjákurl.
Upphaf/endir: Við bílastæðið hjá Smáranum
Bílastæði: Við Smárann
Annað: Kópavogstún og friðuðu húsin, Kópavogsleira og, Þingstaðurinn og Kópavogslækurinn
Gönguleiðin
Komið er við á fjölbreyttum stöðum á leiðinni sem kynna ótrúlega fjölbreytni í náttúru, sögu og menningu á þessu litla svæði og sýnir hvernig örnefni tengjast sögu fólksins í dalnum.
Hægt er að fara þessa leið allt árið og er tiltölulega skjólgott í dalnum í flestum áttum.