Kópavogsgöngur
Hér er að finna safn gönguleiða í landi Kópavogsbæjar.
Stefnt er að því að bæta stöðugt við nýjum gönguleiðum til að auka fjölbreytileika og tækifæri sem flesta að njóta gönguferða í landi Kópavogsbæjar.
Gönguleiðir
Þessar leiðir eru ekki stikaðar en hverri gönguleið fylgir tengill á forritið Wikiloc sem gerir það kleift að fylgja hverri leið á snjallsímanum eða hlaða niður GPX skrá og færa yfir á GPS tæki. Á Wikiloc síðu gönguleiðanna er bent á athyglisverða stað og fróðleik. Wikiloc forritið má nálgast í app store eða play store.
Ýmsar gagnlegar upplýsingar er að finna við gönguleiðirnar svo sem vegalengd, áætlaðan göngutíma og hækkun á gönguleið. Þá eru gönguleiðirnar flokkaðar eftir erfiðleikastigi í létt, miðlungs og krefjandi. Mikilvægast er þó að undirbúa sig vel, fylgjast með veðurspám og aðstæðum og muna að það er alltaf hægt að fara leiðina á öðrum tíma ef aðstæður eru erfiðar.
Loks er minnt á góða umgengni við umhverfið og að taka upp rusl ef þið sjáið á leið ykkar. Hægt er að koma ábendingum varðandi gönguleiðirnar eða annað tengt þeim á tölvupóstfangið gonguleidir(hjá)kopavogur.is
Léttar gönguleiðir

Fossvogsdalur
Létt6,5 km | Létt | 1,5 klst | 15 m

Guðmundarlundur - Elliðavatn hringur
Ekki létt5 km | Létt | 1,5 klst | 120 m

Himnastiginn, Víghóll og Heljarslóð
Létt3,5 km | Létt | 1 klst | 73 m

Kópavogsdalur og Kópavogstún
Létt3,5 km | Létt | 1 klst | 10 m

Umhverfis Linda- og Salahverfi
Létt9,5 km | Létt | 2 klst | 114 m
Miðlungs gönguleiðir

Seljafjall og Sandfell
5,3 km | Miðlungs | 2 klst | 300 m
Krefjandi gönguleiðir

Langleiðin: Bláfjallahryggur endilangur og Vífilsfell
létt14 km | Krefjandi | 6 klst | 760 m
Stóra-Kóngsfell, Drottning og Eldborg