Selfjall og Sandfell
Selfjall og Sandfell eru skemmtileg fjöll skammt frá Suðurlandsvegi, rétt utan við höfuðborgarsvæðið.
Þau eru ekki há og fremur aflíðandi og því auðveld göngu fyrir fólk á öllum aldri.

Nánari upplýsingar um gönguleið
Lengd: 5,3 km
Erfiðleiki: Miðlungs
Tími: 2 klst
Hækkun: 300 m
Undirlag: Aðallega melar en einnig stuttar skriður og móberg í bland
Upphaf/endir: Við bílastæðið ofan við Waldorf skólann í Lækjarbotnum
Bílastæði: Ofan við Waldorf skólann í Lækjarbotnum
Annað: Fallegt sjónarhorn á hraunið Húsfellsbruna og útsýni til allra átta
Gönguleiðin
Gengið er eftir hrygg ofan við Waldorfskólann í Lækjarbotnum á Selfjallið og þaðan niður að hraunjaðri Húsfellsbruna og upp á Sandfellið. Til þess að bæta í hækkunina þá er aftur farið á Selfjallið á bakaleiðinni. Leiðin er sérlega falleg á vorin og síðsumars þegar sólarlagsins yfir Faxaflóa nýtur við. Athugið að fín bílastæði eru á hæðinni áður en keyrt er niður að skólanum og er göngufólk vinsamlega beðið um að fara ekki inn á lóð skólans.
Hægt er að fara allt árið á Selfjall og Sandfell en á veturna þarf að taka með keðjubrodda (Esjubrodda) og óþarfi að fara bröttustu leiðina upp á Sandfell, velja frekar aflíðandi leiðir og ganga í krákustígum. Á vorin á meðan frost er í jörðu getur verið drulla þarna eins og annars staðar.