Beint í efni

Um­hverf­is Linda- og Sala­hverfi

Þessi leið fer nánast umhverfis allt Linda- og Salahverfi og öll leiðin er innan landamerkja jarðarinnar Fífuhvamms þar sem búið var fram yfir miðja 20. öld.

Linda- og Salahverfi

Nán­ari upp­lýs­ingar um göngu­leið

Lengd: 9,5 km

Erfiðleiki: Létt

Tími: 2 klst

Hækkun: 114 m

Undirlag: Sléttir stíga (malbik, möl og gangstétt)

Upphaf/endir: Við Salalaug

Bílastæði: Við Salalaug

Göngu­leið­in

Farið er framhjá bæjarstæði Fífuhvamms ofan við Lindaskóla á þessari leið. Einnig er gengið framhjá Kópavogskirkjugarði, Hádegishólum, um Selhrygg og ofan og meðfram golfvellinum Leirdal. Leiðin er greiðfær allt árið.