Beint í efni

Víf­ils­fell

Eitt af fallegum fellum í nágrenni höfuðborgarsvæðisins er Vífilsfell. Það er sérstaklega áberandi þar sem það rís ofan við sléttuna þar sem flugvöllurinn á Sandskeiði er og Suðurlandsvegurinn liggur með Fóelluvötnin á báða vegu.

Vífilsfellið er einnig áhugavert út frá jarðfræðilegu sjónarhorni þar sem það myndaðist í tveimur gosum undir misjafnlega þykkum ísaldarjökli.

Vífilsfell

Nán­ari upp­lýs­ingar um göngu­leið

Lengd: 6 km

Erfiðleiki: Krefjandi

Tími: 2,5 klst

Hækkun: 450 m

Undirlag: Malarskriður, melar og móbergsklettar

Upphaf/endir: Við jarðnámuna undir Vífilsfelli

Bílastæði: Rétt framan við lokunarslá við veginn að jarðnámunni undir Vífilsfelli

Annað: Fallegar klettamyndir í móberginu og útsýni til allra átta

Göngu­leið­in

Gangan á að vera flestum hæf sem eru í sæmilegu formi. Engu að síður þarf að fara varlega á nokkrum stöðum í bröttum skriðum og móbergi. Jafnvel þarf að handstyrkja sig á köflum síðasta spölinn á hæsta hlutanum. Á veturna þarf ísöxi og jöklabrodda á þessari leið. Þess má geta að Vífilsfell var valið bæjarfjall Kópavogs í kosningum árið 2013. Útsýnið af toppnum er stórkostlegt til allra átta.