Tillaga um gjaldfrjálsan grunnskóla í Kópavogi frá Margréti Júlíu Rafnsdóttur.
Málsnúmer: 1509342
Ferill máls
01
Bæjarráð - 2790. fundur
Frá deildarstjóra grunnskóladeildar, dags. 29. september, lagt fram erindi vegna afgreiðslu skólanefndar á tillögu um gjaldfrjálsan grunnskóla í Kópavogi, ásamt minnisblaði um kostnaðargreiningu.
Bæjarráð vísar tillögunni til gerðar fjárhagsáætlunar.
02
Skólanefnd - 91. fundur
Samantekt á kostnaði vegna tillögu lagt fram að beiðni skólanefndar.
Skólanefnd vísar tillögunni til gerðar fjárhagsáætlunar með hliðsjón af kostnaðargreiningu. Jafnframt hvetur skólanefnd foreldrafélög og skóla til að leita leiða til að halda kostnaði við innkaup í lágmarki. Skólanefnd horfir til þess að innleiðing spjaldtölva muni lækka kostnað vegna innkaupalista.
03
Skólanefnd - 90. fundur
Skólanefnd óskar eftir tölulegum upplýsingum um málið frá menntasviði.
04
Bæjarráð - 2787. fundur
Frá Margréti Júlíu Rafnsdóttur, tillaga um gjaldfrjálsan grunnskóla í Kópavogi sem felur í sér að námsgögn og skólamáltíðir verði börnum að kostnaðarlausu.
Bæjarráð vísar erindinu til skólanefndar til umsagnar.