Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2911. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Sverrir Óskarsson - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalfulltrúi
  • Birkir Jón Jónsson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Kristinn Dagur Gissurarson - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn
  • Margrét Júlía Rafnsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Arnþór Sigurðsson - varafulltrúi
    Sat fundinn í staðinn

Starfsmenn

  • Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
  • Páll Magnússon - bæjarritari

Ritari

  • Páll Magnússon

Karen Halldórsdóttir, varaformaður, stýrði fundi í fjarveri formanns.

Ármann Kr. Ólafsson sat fundinn í fjarveru Hjördísar Johnson.

Dagskrá fundar

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

01

Ársreikningur Kópavogsbæjar 2017

Frá fjármálastjóra, lagðir fram ársreikningar Kópavogsbæjar og stofnana bæjarins fyrir árið 2017.

Bæjarráð samþykkir framlagða ársreikninga með fimm atkvæðum og vísar afgreiðslu ársreikninga til bæjarstjórnar til fyrri umræðu.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

02

Tónahvarf 4, umsóknir um lóð.

Frá lögfræðideild, dags. 16. apríl, lagt fram erindi er varðar lóðaúthlutun á lóðinni Tónahvarfi 4. Átta umsækjendur sóttu um lóðina og lagt er til dregið verði milli þeirra tveggja umsækjenda sem koma til greina við úthlutun lóðarinnar, en það eru Litluvellir efh., kt. 570513-0520 og Þarfaþing ehf., kt. 450193-3059.

Fulltrúi Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu var boðaður til fundarins til að sjá um útdrátt á milli umsækjenda. Útdráttur var færður í gerðarbók sýslumanns. Dregin var umsókn Litluvalla ehf., kt. 570513-0520. Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umsókn Litluvalla ehf. um lóðina Tónahvarf 4 með vísan til niðurstöðu útdráttar og vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

03

Íþróttamiðstöðin Versölum, veitingasala.

Frá sviðsstjóra menntasviðs- og umhverfissviðs, dags. 10. apríl, lagt fram erindi er varðar veitingasölu í íþróttamiðstöðinni Versölum.

Bæjarráð samþykkir erindið með fimm atkvæðum.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

04

Skógræktarfélag Kópavogs, samstarfssamningur.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 16. apríl, lagt fram erindi er varðar samstarfssamning við Skógræktarfélag Íslands.

Bæjarráð samþykkir samstarfssamninginn með fimm atkvæðum.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

05

Vesturvör 40-42 og 44-48 - samkomulag um uppbyggingu á svæðinu

Frá lögfræðideild, lögð fram drög að samkomulagi um lóðirnar Vesturvör 40-48. Bæjarráð frestaði afgreiðslu málsins á fundi sínum 22. mars sl.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar með fimm atkvæðum.

Erindi og umsagnir frá starfsmönnum

06

Austurkór 157A,157B,159 og 161, Heimild til veðsetningar

Frá lögfræðideild, dags. 16. apríl, lagt fram erindi f.h. lóðarhafa Austurkórs 157A, 157B, 159 og 161, Gráhyrnu ehf., um heimild til veðsetningar á 1. veðrétt á lóðina.

Bæjarráð samþykkir framlagt erindi um heimild til veðsetningar með fimm atkvæðum.

Ýmis erindi

07

Arðgreiðsla vegna ársins 2018

Frá Lánasjóði sveitarfélaga, dags. 9. apríl, lagt fram bréf er varðar arðgreiðslu 2018 úr Lánasjóði sveitarfélagi ohf.

Lagt fram.

Ýmis erindi

08

Kópavogshæli Hringshúsið, útboð á innanhúsfrágangi.

Frá Minjastofnun Íslands, dags. 10. apríl, lagt fram erindi er varðar styrkúthlutun 2018 úr húsafriðunarsjóði.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til afgreiðslu.

Ýmis erindi

09

Breytt umferðaraðgengi að Digraneskirkju

Frá Sóknarnefnd Digraneskirkju, dags. 13. apríl, lagt fram bréf er varðar ósk um breytt umferðaraðgengi að Digraneskirkju.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.

Ýmis erindi

10

Samkomulag um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins

Frá framkvæmdarstjóra SSH, dags. 12. apríl, lögð fram drög að mögulegu samkomulagi sveitarfélagana um endurnýjun og uppbyggingu á mannvirkjum skíðasvæða höfuðborgarsvæðisins.

Lagt fram.

Bæjarráð lýsir stuðningi við fyrirhugaða uppbyggingu skíðasvæða.

Ýmis erindi

11

Kvörtun varðandi félagslegt leiguhúsnæði. Beiðni um upplýsingar og gögn

Frá Umboðsmanni Alþingis, dags. 11. apríl, lagt fram bréf er varðar lok máls um kvörtun varðandi félagslegt leiguhúsnæði.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

12

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 238. fundur frá 22.03.2018

Fundargerð í 13 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

13

Leikskólanefnd - 93. fundur frá 12.04.2018

Fundargerð í 4 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

14

Lista- og menningarráð - 88. fundur frá 12.04.2018

Fundargerð í 5 liðum.

Lagt fram.


14.2 - 1804186 - Reglur um tilnefningu bæjarlistamanns Kópavogs. Reglur um tilnefningu heiðurslistamanns Kópavogs

Drög að nýjum reglum um bæjarlistamann Kópavogs og heiðurslistamann Kópavogs

Lista- og menningarráð samþykkir drögin fyrir sitt leyti og felur forstöðumanni menningarmála að ganga frá reglunum til afgreiðslu bæjarstjórnar.

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.


Fundargerðir nefnda

15

Velferðarráð - 27. fundur frá 09.04.2018

Fundargerð í 8 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

16

4. fundargerð skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi frá 21. mars 2018

Fundargerð í 7 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

17

Fundargerð 456. fundar stjórnar SSH frá 09.04.2018

Fundargerð í 4 liðum.

Lagt fram.

Fundargerðir nefnda

18

Fundargerð 388. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 13.04.2018

Fundargerð í 8 liðum.

Jafnframt eru lögð fram þrjú fylgiskjöl : "Bréf Umhverfisstofnunar vegna starfsleyfis fyrir urðun", "Viljayfirlýsing undirrituð" og "SOS samningur - framlenging".

Lagt fram.

Erindi frá bæjarfulltrúum

19

Innleiðing Barnasáttmála Sameinuðu Þjóðanna

Frá fulltrúum meirihluta Sjálfstæðisflokks og Bjartrar framtíðar, dags. 16. apríl, lagt fram erindi er varðar undirbúning að innleiðingu Barnasáttmála SÞ.

Bæjarráð samþykkir tillöguna með fimm atkvæðum.

Arnþór Sigurðsson lagði fram eftirfarandi bókun:

"Undirritaður fagnar framlagðri tillögu um fyrstu skref í innleiðingu Barnasáttmálans í Kópavogi og tekur heilshugar undir tillöguna.

Arnþór Sigurðsson"

Erindi frá bæjarfulltrúum

20

Óskað eftir upplýsingum varðandi uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Kópavogi á yfirstandandi kjörtímabili. Beiðni frá Pétri Hrafni Sigurðssyni bæjarfulltrúa

Frá Pétri Hrafni Sigurðssyni, ítrekar beiðni sína eftir upplýsingum varðandi uppbyggingu íbúðarhúsnæðis í Kópavogi á yfirstandandi kjörtímabili.

Lagt fram.