Umsókn um stofnframlag vegna byggingar á 24 íbúðum að Hallarhvarfi
Málsnúmer: 2511279
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3246. fundur
Frá deildarstjóra greiningardeildar, dags. 03.02.2026, lögð fram umsögn varðandi umsókn um stofnframlag vegna byggingar á 24 íbúðum að Hallarhvarfi 17-19 og Hallarhvarfi 21--23. Bæjarráð frestaði málinu 05.02.2026.
Lagt fram
Umræður.
Bæjarráð hafnar umsókn um stofnframlag með þremur atkvæðum gegn atkvæðum Helgu Jónsdóttur og Einars A. Þorvarðarsonar.
Fundarhlé hófst kl. 10:15, fundi fram haldið kl. 11:31
Bókun:
"Við úthlutun í Vatnsendahvarfi hefur bærinn haft til viðmiðunar um að auka framboð húsnæðis af öllum gerðum fyrir kaupendur á almennum húsnæðismarkaði. Það samræmist ekki þeim áherslum að verða við beiðni frá Bjargi íbúðafélagi um fjárhagsstuðning til uppbyggingarinnar að fjárhæð um 220 milljónir kr."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Elísabet Sveinsdóttir
Bókun:
"Það svar sem barst sem umsögn við þessu máli snýst einungis um félagslegt húsnæði Kópavogs og hvernig bærinn stendur að þeim málaflokki. Beiðni Bjargs íbúðafélags snýst hins vegar um 12% stofnframlag sveitarfélagsins á móti 18% framlagi ríkisins í samræmi við lög um almennar íbúðir. Þær íbúðir eru ætlaðar þeim tekjuhópum sem standa fjárhagslega skör ofar þeim sem eiga rétt til félagslegs húsnæðis en þurfa eigi að síður aðstoð til þess.
Bjarg hses hefur sýnt fram á að innan almenna íbúðakerfisins er hægt að bjóða tryggt húsnæði á mun betra verði en almennt er á leigumarkaði. Sjálfseignarstofnunin er í eigu ASÍ og BSRB en um 75% vinnandi fólks á aldrinum 16-64 ára er í aðildarfélögum heildarsamtakanna. Hlutfallið sem fullnægir eigna- og tekjuskilyrðum almenna íbúðakerfis er þó enn hærra, því að utan heildarsamtakanna eru betur launaðar stéttir, t.d. háskólafélög, stjórnendur og sérfræðingar. Undirrituð leggja áherslu á að Kópavogsbær taki upp samstarf við Bjarg til að opna möguleika fyrir námsmenn, ungt fólk, aldraða, fatlað fólk og fólk sem ekki er fært um að sjá sér fyrir húsnæði sökum félagslegra aðstæðna eða verulegs fjárhagsvanda. Kópavogur á að vera samfélag allra, ekki bara þeirra sem hafa efni á húsnæði með hárri arðkröfu fjárfesta og milljarðatekjum sveitarfélags af sölu byggingarréttar."
Bergljót Kristinsdóttir
Einar Þorvarðarson
Helga Jónsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Bókun:
"Kópavogur á í samstarfi um lausnir í húsnæðismálum fyrir ólíka hópa, þ.m.t. tekjulága, öryrkja og aldraða. Það breytir því ekki að úthlutun til Bjargs samræmist ekki þeim áherslum sem mótaðar voru við úthlutun í Vatnsendahvarfi."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Elísabet Sveinsdóttir
Bókun:
"Kópavogsbær hefur á undanförnum árum ráðstafað landréttindum bæjarins til þeirra sem greiða hæst verð fyrir byggingarréttinn. Bærinn hefur haft margra milljarða tekjur af því. Hann er í góðri stöðu til að leggja af mörkum til uppbyggingar húsnæðis í þágu mismunandi tekjuhópa sem samkvæmt lögum er sameiginlegt hlutverk ríkis og sveitarfélaga."
Bergljót Kristinsdóttir
Einar Þorvarðarson
Helga Jónsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Bókun:
"Meiri- og minnihluta greinir á um leiðir að því markmiði að sem flestir geti eignast þak yfir höfuðið. Sala á byggingarrétti á markaðsverði er sanngjarnasta leiðin til að tryggja að allir sitji við sama borð. Almenningur nýtur andvirðisins í formi uppbyggingar innviða, þjónustu, lægri skatta og niðurgreiðslu skulda."
Ásdís Kristjánsdóttir
Orri Hlöðversson
Andri Steinn Hilmarsson
Elísabet Sveinsdóttir
02
Bæjarráð - 3245. fundur
Frá deildarstjóra greiningardeildar, dags. 03.02.2026, lögð fram umsögn varðandi umsókn um stofnframlag vegna byggingar á 24 íbúðum að Hallarhvarfi 17-19 og Hallarhvarfi 21--23.
Frestað til næsta fundar.
03
Bæjarráð - 3234. fundur
Frá Bjargi íbúðarfélagi, dags. 04.11.2024, lögð fram umsókn um stofnframlags vegna byggingar á 24 íbúðum að Hallahvarfi 17-19 og Hallahvarfi 21-23.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar áhættu- og fjárstýringarstjóra.