Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 2920. fundur

á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Birkir Jón Jónsson - formaður
  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Einar Örn Þorvarðarson - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
  • Páll Magnússon - bæjarritari

Ritari

  • Páll Magnússon

Samkvæmt 35. gr. laga nr. 138/2011 og 32. gr. samþykkta Kópavogsbæjar fer bæjarráð með sömu heimildir og bæjarstjórn hefur ella í sumarleyfi hennar.

Dagskrá fundar

01

Kársnes - endurnýjun lampa

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 26. júní, lagðar fram niðurstöður tilboða í endurnýjun götuljósa á Kársnesi. Lagt er til að leitað verði samninga við Reykjafell hf.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að leita samninga við Reykjafell hf. um kaup á 352 LED ljósum vegna endurnýjunar götuljósa á Kársnesi.

Kl. 8.40 vék Ármann Kr. Ólafsson, bæjarstjóri, af fundi.

02

Sandskeiðslína 1. Umsókn um framkvæmdarleyfi.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 20. júní, lagt fram erindi um beiðni Landsnets hf. um að fella niður útgefið framkvæmdaleyfi Kópavogsbæjar fyrir Lyklafellslínu 1.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að fella framkvæmdaleyfið úr gildi.

Birkir Jón Jónsson vék af fundi undir þessum lið.

03

Strætóskýli, auglýsingar og rekstur.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 25. júní, lagt fram erindi þar sem lagt er til að gerður verði áframhaldandi samningur við AFA JCDecaux Ísland ehf. um auglýsingar og rekstur strætóbiðskýla í Kópavogi.

Bæjarráð vísar málinu til bæjarlögmanns til umsagnar.

04

Framlenging á leyfi Melmis ehf, til leitar og rannsókna á málmum, dags. 23. júní 2004 til 1. júlí 2023

Frá Orkustofnun, dags. 20. júní, lagt fram erindi um framlengingu á leyfi Melmis ehf. til leitar og rannsókna á málmum.

Bæjarráð vísar erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs til umsagnar.

05

Umsókn um styrk vegna alþjóða geðheilbrigðisdagsins 10. október 2018

Frá Styrktarfélagi alþjóða geðheilbrigðissjóðsins, dags. 18. júní, lagt fram erindi um styrk í tilefni af alþjóða geðheilbrigðisdeginum þann 10. október 2018 til þess að standa straum af kostnaði við vitundarvakningu um geðheilbrigðismál.

Bæjarráð vísar erindinu til sérfræðings lýðheilsumála til umsagnar.

06

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 243. fundur frá 07.06.2018

Fundargerð í 10. liðum.

Bæjarráð staðfestir afgreiðslur byggingarfulltrúa með fimm atkvæðum.

07

Barnaverndarnefnd - 81. fundur frá 17.05.2018

Fundargerð í 1. lið.

Lagt fram.

08

Barnaverndarnefnd - 82. fundur frá 11.06.2018

Fundargerð í 1. lið.

Lagt fram.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að í júlí verði fundir bæjarráðs þann 12. og 26., og í ágúst verði fundir þann 9. og 23.