Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3060. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Karen Elísabet S Halldórsdóttir - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Hjördís Ýr Johnson - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Helga Hauksdóttir - aðalmaður

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Ráðning, deildarstjóri lögfræðideildar

Frá sviðsstjóra stjórnsýslusviðs dags. 28. september 2021, lögð fram tillaga um ráðningu deildarstjóra lögfræðideildar.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum tillögu sviðsstjóra stjórnsýslusviðs um ráðningu Ásu Arnfríðar Kristjánsdóttur í starf deildarstjóra lögfræðideildar.

02

Svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa um kynhlutlausa búningsklefa í sundlaugum Kópavogs

Frá sviðsstjórum mennta- og umhverfissviðs, dags. 27.09.2021, lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa um kynhlutlausa búningsklefa í sundlaugum Kópavogs.

Lagt fram.

03

Óskað eftir að skipað verði í undirbúningsnefnd vegna uppbyggingar á keppnisvelli við Kórinn

Frá sviðsstjórum mennta- og umhverfissviðs, dags. 27.09.2021, lögð fram umsögn um erindi Handknattleiksfélags Kópavogs, dags. 27.05.2021, varðandi uppbyggingu á keppnisvelli við Kórinn.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að stofnað verði fjögurra manna vinnuteymi, skipað tveimur fulltrúum frá umhverfissviði og menntasviði, hvoru fyrir sig, og tveimur fulltrúum frá HK.

04

Boðaþing þjónustumiðstöð. Samkomulag Kópavogsbæjar og Hrafnistu um rekstur og starfsemi í Þjónustumiðstöð við Boðþing

Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 24.09.2021, lögð fram til samþykktar bæjarráðs drög að endurskoðuðu samkomulagi um rekstur og starfsemi í þjónustumiðstöð Boðaþingi.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að framlengja samkomulagi Kópavogsbæjar og Hrafnistu um rekstur og starfsemi í Þjónustumiðstöð við Boðþing til 31.12.2023.

05

Endurnýjun á himnastiganum frá Kópavogsdal upp á Digranesheiði.

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 27.09.2021, lagðar fram tillögur að lagfæringum og/eða endurnýjun á Himnastiganum frá Kópavogsdal upp á Digranesheiði.

Bæjarráð samþykktir með fimm atkvæðum að hefja endurhönnun himnastigans að teknu tilliti til lýðheilsu og listrænnar útfærslu. Framkvæmdakostnaði vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.

06

Ósk um umsögn eða athugasemdir við drónaflug til afhendingar í Kópavogi

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags, 13.09.2021, lögð fram umsögn umhverfissviðs um drónaflug við heimsendingar í Kópavogi. Bæjarráð frestaði málinu á fundi sinum þann 23.09.2021.

Bæjarráð tekur jákvætt í erindið en telur sér ófært að afgreiða það fyrr en ný reglugerð liggur fyrir.

07

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 326. fundur frá 24.09.2021

Fundargerð í 6 liðum.

Lagt fram.

08

Umhverfis- og samgöngunefnd - 145. fundur frá 21.09.2021

Fundargerð í 1 lið.

Lagt fram.

09

Leikskólanefnd - 134. fundur frá 23.09.2021

Fundargerð í 7 liðum.

Fundargerð í 7 liðum

10

Velferðarráð - 90. fundur frá 27.09.2021

fundargerð í 9 liðum.

Lagt fram.

11

Fundargerð 454. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 06.09.2021

Fundargerð í 3 liðum.

Lagt fram.

12

Fundargerð 455. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 10.09.2021

Fundargerð í 2 liðum.

Lagt fram.

13

Fundargerð 456. fundar stjórnar Sorpu bs. frá 17.09.2021

Fundargerð í 4 liðum.

Lagt fram.