Niðurstaða undirbúningsnefndar vegna uppbyggingar á keppnisvelli við Kórinn
Málsnúmer: 2106027
Ferill máls
01
Skipulagsráð - 148. fundur
Lögð fram greinargerð vinnuteymis um stúku við Kórinn dags. 23. maí 2023. Greinargerðin var lögð fram og kynnt á fundi bæjarráðs 22. júní 2023. Bæjarráð vísaði málinu til umsagnar skipulagsfulltrúa. Umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. ágúst 2023 var lögð fram á fundi bæjarráðs þann 24. ágúst 2023. Bæjarráð vísaði málinu til skipulagsfulltrúa í samræmi við niðurstöður umsagnarinnar.
Jafnframt er lögð fram ofangreind umsögn skipulagsfulltrúa dags. 2. ágúst 2023.
Lagt fram.
- kórinn stúka kynning - fylgiskjal 2
- Fundagerð Kórinn stúka 12012023
- Hörðuvellir miðsvæði one 2106027 umsögn skipulagsfulltrúa
- Bréf með greinagerð stúkubygging HK
- Greinagerð vinnuteymis um stúku við Kórinn
- Fundagerð Kórinn stúka 12122022
- Fundagerð Kórinn stúka 10112022
- Kórinn stúka - Þrjár sviðsmyndir - uppbygging of áfangaskipting - fylgiskjal 1
02
Bæjarráð - 3139. fundur
Þann 15.06.2023, kynnti deildarstjóri íþróttadeildar vinnu undirbúningsnefndar varðandi uppbyggingu keppnisvallar við Kórinn, sem nú hefur skilað af sér greinagerð um málið. Bæjarráð frestaði erindinu frestað til næsta fundar.
Bæjarráð samþykkti á fundi sínum þann 22.06 að vísa málinu til umsagnar skipulagsstjóra. Nú lögð fram umsögn skipulagsfulltrúa, dags. 01.08.2023.
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til skipulagsfulltrúa í samræmi við niðurstöðu umsagnar hans.
03
Bæjarráð - 3134. fundur
Þann 15.06.2023, kynnti deildarstjóri íþróttadeildar vinnu undirbúningsnefndar varðandi uppbyggingu keppnisvallar við Kórinn, sem nú hefur skilað af sér greinagerð um málið. Bæjarráð frestaði erindinu frestað til næsta fundar.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar skipulagsstjóra.
04
Bæjarráð - 3133. fundur
Deildarstjóri íþróttadeildar kynnti vinnu undirbúningsnefndar varðandi uppbyggingu keppnisvallar við Kórinn, sem nú hefur skilað af sér greinagerð um málið.
Erindinu frestað til næsta fundar.
05
Íþróttaráð - 133. fundur
Deildarstjóri íþróttadeildar kynnti vinnu undirbúningsnefndar varðandi uppbyggingu keppnisvallar við Kórinn, sem nú hefur skilað af sér greinagerð um málið.
Lagt fram og vísað til bæjarráðs.
06
Íþróttaráð - 124. fundur
Deildarstjóri íþróttadeildar kynnti stöðu mála varðandi verkefnið.
07
Bæjarráð - 3060. fundur
Frá sviðsstjórum mennta- og umhverfissviðs, dags. 27.09.2021, lögð fram umsögn um erindi Handknattleiksfélags Kópavogs, dags. 27.05.2021, varðandi uppbyggingu á keppnisvelli við Kórinn.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að stofnað verði fjögurra manna vinnuteymi, skipað tveimur fulltrúum frá umhverfissviði og menntasviði, hvoru fyrir sig, og tveimur fulltrúum frá HK.
08
Bæjarráð - 3049. fundur
Frá Handknattleiksfélagi Kópavogs, dags. 27.05.2021, lögð fram beiðni um að skipað verði í undirbúningsnefnd vegna uppbyggingar á keppnisvelli við Kórinn.
Bæjarráð samþykktir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs og sviðsstjóra umhverfissviðs.