Bæjarráð - 3122. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Orri Vignir Hlöðversson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllSigurbjörg Erla Egilsdóttir - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lagður fram viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2023. Viðaukinn er vegna borunar rannsóknarborholu í Bláfjöllum, málsnúmer 2207106.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Frá forstöðumanni menningarmála, dags. 14. mars, lagt fram erindi þar sem óskað er efir samþykki bæjarráðs á samning um leigu á rými og veitingarekstur í húsnæði Gerðasafns.
Bæjarráð frestar erindinu.
Frá bæjarlögmanni, dags. 13. mars 2023, lagt fram minnisblað um feril umsóknar Teits Jónassonar um lóð við Tónahvarf.
Bæjarráð vísar erindinu með fjórum atkvæðum og hjásetu Andra Steins Hilmarssonar til bæjarlögmanns að nýju til frekari viðræðna við umsækjanda. Bæjarráð lítur svo á að viðræður um úthlutun lóðarinnar Tónahvarfs 4 séu samhangandi við framtíðarhugmyndir um lóðarréttindi Dalvegar 22. Bæjarráð óskar því upplýsinga um hvenær og með hvaða hætti lóðarréttindi Dalvegar 22 kæmu til Kópavogsbæjar.
Frá deildarstjóra innkaupadeildar, dags. 13.03.2023, lagðar fram niðurstöður útboðs á gatnagerð við gatnamót við Dalveg 30. Lagt er til við bæjarráð að tilboði Óskataks ehf. verði tekið og gerður verði verksamningur við fyrirtækið um verkið.
Bæjarráðs samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur og Theódóru S. Þorsteinsdóttur að tilboði Óskataks ehf. verði tekið og gerður verði verksamningur við fyrirtækið um verkið.
Frá lögfræðideild, dags. 9. mars 2023, lagt fram bréf Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu, dags. 8. mars, þar sem óskað er umsagnar um umsókn Senu ehf., kt. 510205-1380, Hagasmára 1, Kópavogi, um tækifærisleyfi og tímabundið áfengisleyfi í tilefni af árshátíið Íslandsbanka þann 18. mars 2023. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 skal sveitarstjórn, sem umsagnaraðili, staðfesta að afgreiðslutími og staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag sveitarfélagsins segja til um.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita jákvæða umsögn með vísan til umsagnar lögfræðideildar.
06
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda og lögum um vinnumarkaðsaðgerðir, 782. mál
Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 8. mars 2023, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um málefni innflytjenda og lög um um vinnumarkaðsaðgerðir (sameining Vinnumálastofnunar og Fjölmenningarseturs, þjónustustöðvar), 782. mál.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
07
Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál, 126. mál.
Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 9. mars, lagt fram til umsagnar tilllaga til þingsályktunar um upplýsingamiðlun um heimilisofbeldismál, 126. mál.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
08
Til umsagnar frumvarp til laga um grunnskóla (framlög til sjálfstætt rekinna grunnskóla), 128. mál.
Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 9. mars 2023, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um grunnskóla (framlög til sjálfstætt rekinna grunnskóla), 128.mál.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
09
Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um aðgerðaráætlun gegn hatursorðræðu fyrir árin 2023-2026, 795. mál
Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 9. mars, lagt fram til umsagnar tillaga til þingsályktunar um aðgerðaráætlun gegn hatursorðræðu fyrir árin 2023-2026,795. mál.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
10
Til umsagnar frumvarp til laga um brottfall laga um orlof húsmæðra, nr. 53-1972, með síðari breytingum, 165. mál
Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um brottfall laga um orlof húsmæðra, nr. 53/1972, með síðari breytingum, 165. mál.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
11
Innviðaráðuneytið vekur athygli á gagngerum breytingum á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga.
Frá innviðaráðuneytinu, dags. 13. mars, lagt fram erindi þar sem vakin er athygli á því að nýverið voru kynntar í samráðsgátt stjórnvalda gagngerar breytingar á regluverki Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga. Breytingarnar miða að því að bæta gæði jöfnunar og einfalda útreikninga og skipulag sjóðsins. Þá er það markmið að umgjörð sjóðsins endurspegli og fylgi þróun sveitarfélagagerðarinnar.
Bæjarráð óskar eftir kynningu frá fulltrúum Jöfnunarsjóðs sveitarfélaga á fyrirhuguðum breytingum á regluverki sjóðsins. Aukinheldur er óskað yfirlits yfir þá styrki sem Kópavogsbær hefur fengið úr sjóðnum s.l. 10 ár.
Frá Lánasjóði sveitarfélaga ohf., dags. 13. mars 2023, lagt fram fundarboð aðalfundar sem haldinn verður föstudaginn 31. mars 2023.
Lagt fram.
Fundargerð 553. fundar stjórnar SSH frá 06.03.2023.
Lagt fram.
Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á skíðasvæðunum frá 17.02.2023.
Lagt fram.
Fundargerð í tíu liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
18
Ósk bæjarfulltrúa Samfylkingar um umræður um stöðu á samningsgerð um samræmda móttöku flóttamanna við ríkið
Frá bæjarfulltrúa Samfylkingar, lögð fram ósk um umræður á stöðu á samningsgerð um samræmda móttöku flóttamanna við ríkið.
Umræður.
Fundarhlé hófst kl. 11:13, fundi fram haldið kl. 11:30
Bókun:
"Nú er að verða liðið ár frá því fyrrverandi bæjarstjóri sjálfstæðismanna staðfesti að Kópavogur væri kominn á lista yfir sveitarfélög sem ætluðu að taka þátt í samræmdri móttöku flóttamanna. Enn hefur enginn samningur litið dagsins ljós en flóttamenn setjast á sama tíma að í Kópavogi með tilstuðlan Vinnumálastofnunar. Bæjarfélagið fær enga meðgjöf frá ríkinu með þessum flóttamönnum. Brýnt er að flýta samningsgerð eins og hægt er til að gæta bæði hagsmuna flóttafólks og bæjarins. Með því að að taka fljótt og vel á móti fólki má styðja það til virkrar þátttöku í samfélaginu."
Bergljót Kristinsdóttir
Helga Jónsdóttir
Indriði Ingi Stefánsson
Theódóra Þorsteinsdóttir
Bókun:
"Sviðsstjóri velferðarsviðs fór vel yfir forsendur samninga um samræmda móttöku flóttafólks og ástæður þess að samningaviðræður standi enn yfir. Gert er ráð fyrir að viðræðum ljúki fljótlega. Rétt er að árétta að Kópavogsbær er að þjónusta fjölda flóttafólks og mun gera það áfram."
Andri Steinn Hilmarsson
Hjördís Ýr Johnson
Orri V. Hlöðversson
19
Tillaga um að stofna starfshóp um útfærslu á nýtingu trjáræktarsvæðis fyrir almenning og fyrirtæki í Kópavogi til eigin kolefnisjöfnunar
Frá bæjarfulltrúa Samfylkingar, lögð fram tillaga um að stofna starfshóp um útfærslu á nýtingu trjáræktarsvæðis fyrir almenning og fyrirtæki í Kópavogi til eigin kolefnisjöfnunar.
Bæjarráð frestar málinu til næsta fundar.
20
Fyrirspurn bæjarfulltrúa - Kostnaður vegna barna búsettra í Kópavogi í sjálfstætt starfandi skólum
Fyrirspurn frá Indriða I. Stefánssyni um hverjar yrðu breytingar á kostnaði bæjarins vegna barna búsettra í Kópavogi sem ganga í sjálfstætt starfandi skóla, kæmi til samþykktar fyrirliggjandi frumvarps þessa efnis, sbr. dagskrárliður 8.
Bæjarráð samþykkir að taka málið inn með afbrigðum.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra menntasviðs.