Viðaukar við fjárhagsáætlun 2023
Málsnúmer: 23031177
Ferill máls
01
Bæjarstjórn - 1291. fundur
Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lagður fram viðauki nr. 2 við fjárhagsáætlun 2023. Viðaukinn er vegna beiðni Strætó bs. um aukaframlag vegna greiðslu skaðabóta og vaxta vegna niðurstöðu Landssréttar í máli 344/2022, málsnúmer 2312853.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðan viðauka við fjárhagsáætlun 2023 vegna beiðni Strætó bs. um aukaframlag vegna greiðslu skaðabóta og vaxta vegna dómsmáls.
02
Bæjarráð - 3156. fundur
Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lagður fram viðauki nr. 2 við fjárhagsáætlun 2023. Viðaukinn er vegna beiðni Strætó bs. um aukaframlag vegna greiðslu skaðabóta og vaxta vegna niðurstöðu Landssréttar í máli 344/2022, málsnúmer 2312853.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
03
Bæjarstjórn - 1275. fundur
Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lagður fram viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2023. Viðaukinn er vegna borunar rannsóknarborholu í Bláfjöllum, málsnúmer 2207106.
Bæjarstjórn samþykkir með 9 atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur og Sigurbjargar E. Egilsdóttur framlagðan viðauka nr. 1 við fjárhagsáætlun 2023. Viðaukinn er vegna borunar rannsóknarborholu í Bláfjöllum, málsnúmer 2207106.
04
Bæjarráð - 3122. fundur
Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lagður fram viðauki nr. 1 við fjárhagsáætlun 2023. Viðaukinn er vegna borunar rannsóknarborholu í Bláfjöllum, málsnúmer 2207106.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.