Bæjarráð - 3234. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Orri Vignir Hlöðversson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllBergljót Kristinsdóttir - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Árshlutastaða Kópavogsbæjar kynnt.
Kynning og umræður.
Gestur vék af fundi kl. 9:27
Fundarhlé hófst kl. 9:28, fundi fram haldið kl. 9:59
Bókun:
"Undirrituð óska eftir:
1. Að yfirlit yfir árshlutastöðu Kópavogsbæjar verði lagt fram með sama hætti og gert var á síðasta ári þar sem málaflokkar eru sundurliðaðir eftir sviðum.
2. Efnislegum skýringum frá bæjarstjóra á þeim útgjaldaliðum sem samkvæmt árshlutastöðunni eru ekki í samræmi við fjárhagsáætlun.
3. Tillögum um sérstakar verklagsreglur um heimildir vegna tilfærslu milli launakostnaðar og annars rekstrarkostnaðar og millifærslu milli deilda sem og um heimildir vegna fjárfestingar og millifærslu milli verkefna sbr. leiðbeiningar reikningsskila- og upplýsinganefndar."
Helga Jónsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Hákon Gunnarsson
Frá umhverfissviði, dags. 04.11.2025, lögð fram beiðni um heimild til veðsetningar.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur og Theódóru S. Þorsteinsdóttur umbeðna heimild til veðsetningar.
Frá mennta- og barnamálaráðuneytinu, dags. 03.11.2025, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir tilnefningu að Kópavogsbær tilnefni tvo aðalfulltrúa og tvo til vara í skólanefnd Menntastkólans í Kópavogi.
Bæjarráð tilnefnir Ingibjörgu Auði Guðmundsdóttur og Guðmund Birki Þorkelsson sem aðalfulltrúa í skólanefnd Menntaskólans í Kópavogi og Björgu Baldursdóttur og Theódóru S. Þorsteinsdóttur til vara.
Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.
Frá Bjargi íbúðarfélagi, dags. 04.11.2024, lögð fram umsókn um stofnframlags vegna byggingar á 24 íbúðum að Hallahvarfi 17-19 og Hallahvarfi 21-23.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar áhættu- og fjárstýringarstjóra.
Fundargerð 38. fundar Heilbrigðisnefndar Hafnarfjarðar- og Kópavogssvæðis frá 27.10.2025.
Lagt fram.
Fundargerð 412. fundar stjórnar Strætó frá 10.10.2025.
Framlagningu frestað til næsta fundar og fylgigagna óskað.
Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.
Umræður.
Bókun:
"Því er beint til formanns innkaupanefndar að sjá til þess að öll gögn séu lögð fram og fylgi hverju máli á dagskrá innkaupanefndar."
Theódóra S. Þorsteindóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
Hákon Gunnarsson
Helga Jónsdóttir
Fundargerð í átta liðum.
Lagt fram.
8.2 - 2103759 - Kársnesstígur á sunnanverðu Kársnesi. Deiliskipulag.
Lögð fram á vinnslustigi tillaga að nýju deiliskipulagi Kársnesstígs á sunnanverðu Kársnesi, dags. 31. október 2025, til forkynningar í samræmi við 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Viðfangsefni deiliskipulagsins eru endurbætur á Kársnesstíg á sunnanverðu Kársnesi með áherslu á að bæta aðgengi og öryggi gangandi og hjólandi vegfarenda. Í því samhengi er lagt til að komið verði fyrir aðgreindum hjólastíg sem stuðlar að skýrari aðgreiningu ferðamáta og eykur öryggi allra vegfarenda. Skipulagssvæðið nær yfir Kársnesstíg og nærliggjandi svæði á milli Bakkabrautar 2 og Urðarbrautar og er í samræmi við stefnu og markmið Aðalskipulags Kópavogs 2019-2040. Tillagan sem er á vinnslustigi til forkynningar er sett fram á tveimur skýringaruppdráttum dags. 31. október 2025. Tillögunni fylgir umhverfismat áætlunar dags. 29. október 2025 sem unnið er af Eflu. Einnig er lögð fram rýni á valköstum frá Urbana-Pláss dags. í apríl 2025, valkostagreining fyrir legu göngu- og hjólastígsins dags. 5. desember 2022, umferðaröryggisrýni frá Vegagerðinni dags. í janúar 2023 og minnisblað frá ReSource um umhverfisáhrif dags. 30. apríl 2025.
Birkir Rútsson deildarstjóri gatnadeildar og Kristjana H. Kristjánsdóttir verkefnastjóri gerðu grein fyrir tillögunni. Hrafnhildur Brynjólfsdóttir ráðgjafi frá Eflu gerði grein fyrir umhverfismati áætlunarinnar.
Samþykkt með fimm atkvæðum Hjördísar Ýrar Johnson, Kristins Dags Gissurarsonar, Andra Steins Hilmarssonar, Gunnars Sæs Ragnarssonar og Hákonar Gunnarssonar gegn atkvæði Helgu Jónsdóttur að framlögð tillaga verði forkynnt á vinnslustigi með vísan til 3. mgr. 40. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Leó Snær Pétursson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
- Tillaga á vinnslustigi skipulagsuppdráttur 1 af 2 drög_311025
- Tillaga á vinnslustigi skipulagsuppdráttur 2 af 2 drög_311025
- skýringaruppdráttur drög dags. 31.10.2025
- Umhverfismat Efla, dags. 29.10.2025
- Kársnesstígur - valkostagreining_útsent
- Stígur um sunnanvert Kársnes_Valkostagreining_2023.01.11_Öryggismat
- Útivistarstígur um Kársnes - mat á valkostum
- ReSource_Minnisblad, dags 30.apríl 2025_Göngustígur Kópavogur
- Ágrip,dags 31. október 2025
- Kynning Eflu á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 3. nóvember 2025.
- Glærur af 18. fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 3. nóvember 2025
8.5 - 23112060 - Keppnisvöllur við Kórinn. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju tillaga umhverfissviðs dags. 3. júlí 2025 að breytingu á deiliskipulaginu, Hörðuvellir - Heilsu-, íþrótta- og fræðasetur samþykkt í bæjarstjórn 19. júlí 2005 með síðari breytingum og Hörðuvellir Miðsvæði, samþykkt í bæjarstjórn 28. ágúst 2014 en heildarskipulagið sem er í gildi á svæðinu er deiliskipulag Hörðuvalla samþykkt 24. júlí 2003. Í breytingunni felst nýr keppnisvöllur norðan Kórsins í samræmi við kröfur KSÍ til knattleikja í efstu deild m.a. m.t.t. lágmarksfjölda áhorfenda í sætum með yfirbyggðu þaki auk aðstöðu fyrir fjölmiðla og flóðlýsingu. Austan keppnisvallarins er gert ráð fyrir yfirbyggðri áhorfendastúku allt að 3000 m². Áætlað heildarbyggingarmagn á lóðinni verður áfram samtals 41.500 m² og nýtingarhlutfall 0,61. Tillagan gerir auk þess ráð fyrir stækkun lóðarinnar um 600 m² úr 67.662 m² í 68.262 m² til norðurs og austurs. Tillagan var auglýst frá 13. ágúst til og 30. september 2025. Á fundi skipulags- og umhverfisráðs þann 6. október 2025 var athugasemdum sem bárust á kynningartíma vísað til umsagnar skipulagsfulltrúa. Lagt fram að nýju ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 30. október 2025 og uppfærðum uppdrætti dags. 29. október 2025.
Samþykkt með áorðnum breytingum dags. 29. október 2025. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bókun:
„Óskað er eftir að gerður verður samanburður á kostnaði við uppsetningu flóðlýsingar á knattspyrnuleikvangi í Kórnum milli eftirfarandi tveggja valkosta áður en endanleg ákvörðun er tekin um ljósabúnað.
a. Reglugerðar KSÍ um knattspyrnuleikvanga (B flokkur)
b. Fljóðljósaleiðbeininga Knattspyrnusambands Evrópu (UEFA) (D flokkur).“
Hákon Gunnarsson og Leó Snær Pétursson.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
8.7 - 25071207 - Þinghólsbraut 63. Byggingarleyfisumsókn.
Lögð fram byggingarleyfisumsókn Ívars Arnars Guðmundssonar arkitekts f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 63 við Þinghólsbraut. Sótt er um 30,2 m² viðbyggingu á suð-vesturhlið, ásamt breytingum á innra skipulagi hússins og að komið verði fyrir stiga á austurhlið hússins. Núverandi þakform yrði framlengt og þakið hækkað um 23 cm yfir mestu þakhæðina. Nýtingarhlutfall hækkar úr 0,28 í 0,3. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 3. september til 3. október 2025 og athugasemd barst. Byggingarleyfisumsóknin var grenndarkynnt frá 3. september til 3. október 2025 og athugasemd barst. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 27. október 2025 var umsókninni vísað til skipulags- og umhverfisráðs og er nú lagt fram ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2025.
Samþykkt með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2025. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
8.8 - 25092452 - Grundarhvarf 8. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram umsókn Sveins Ívarssonar arkitekts dags. 18. september 2025 f.h. lóðarhafa lóðarinnar nr. 8 við Grundarhvarf um breytingu á deiliskipulagi. Í breytingunni felst uppskipting lóðarinnar í lóðirnar nr. 8A og 8B við Grundarhvarf ásamt stækkun á núverandi húsi til austurs. Lóðin er 1.410 m² og með fyrirhugaðri breytingu yrði lóð A 850 m² og lóð B 560 m². Áformað nýtingarhlutfall lóðarinnar nr. 8A yrði 0,29 og 8B yrði 0,45. Uppdrættir dags. 10. september 2025. Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa þann 27. október 2025 var umsókninni vísað til skipulags- og umhverfisráðs og er nú lagt fram ásamt umsögn skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2025.
Synjað með vísan til umsagnar skipulagsfulltrúa dags. 27. október 2025. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Umræður.