Bæjarráð - 3107. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Orri Vignir Hlöðversson - formaður
- Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
- Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Helga Jónsdóttir - aðalmaður
- Bergljót Kristinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllHákon Gunnarsson - vara áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - bæjarlögmaður
- Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri
Ritari
- Ása A. Kristjánsdóttir
Dagskrá fundar
Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lagðar fram gjaldskrár Kópavogsbæjar fyrir árið 2023.
Bæjarráð samþykkir með þremur atkvæðum að vísa málinu til staðfestingar bæjarstjórnar. Bæjarfulltrúarnir Helga Jónsdóttir og Theodóra Þorsteinsdóttir sátu hjá við afgreiðslu málsins.
Frá sviðsstjóra fjármálasviðs, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir september.
Lagt fram.
Frá gæðastjóra, lögð fram tillaga að nýrri og endurskoðaðri gæðasamþykkt (stefnu) Kópavogabæjar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til staðfestingar bæjarstjórnar.
Frá Umhverfisstofnun, dags. 07.11.2022, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir tilnefningum í vatnasvæðanefndir með tilvísan í 6. gr. reglugerðar um stjórn vatnamála.
Bæjarráð frestaði erindinu 10.11.2022.
Bæjarráð felur bæjarstjóra að tilnefnda fulltrúa í vatnasvæðanefnd.
Frá SSH, dags. 31.10.20022, lagðar fram áherslur Svæðisskipulagsnefnd ar 2022-2026.
Lagt fram.
Frá Árna Þ. Árnasyni fh. brennunefndar íbúa Þingahverfis, dags. 15.11.2022, lögð fram beiðni um styrk vegna áramótabrennu.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu sviðsstjóra stjórnsýslusviðs.
Orri Hlöðversson vék af fundi undir afgreiðslu málsins.
Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.
Fundargerð í 18 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 20 liðum.
Lagt fram.
10.16 - 2209720 - Víðigrund 23. Breytt deiliskipulag.
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa dags. 26. september 2022 var lögð fram umsókn Sigríðar Arngrímsdóttur arkitekts f.h. lóðarhafa um breytt deiliskipulag á lóðinni nr. 23 við Víðigrund.
Í breytingunni felst viðbygging á einni hæð við vesturhlið núverandi einbýlishúss á lóðinni alls 35 m². Nýtingarhlutfall á lóðinni hækkar úr 0,28 í 0,36 við breytinguna.
Samþykkt var með tilvísun í 2. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Víðigrundar 11, 13, 21, 25, 29 og 31.
Kynningartíma lauk 31. október 2022, engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
10.17 - 2209638 - Skjólbraut 8. Kynning á byggingarleyfisumsókn.
Á embættisafgreiðslufundi skipulagsfulltrúa 26. september 2022 var lagt fram erindi byggingarfulltrúa dags. 16. september 2022 þar sem umsókn Kristjáns Georgs Leifssonar f.h. lóðarhafa um byggingarleyfi er vísað til skipulagsráðs meið tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Í breytingunni felst að bílgeymsla á norðausturhluta lóðarinnar stækkar um 13,5 m til suðurs og hækkar um 0,9 metra.
Nýtingarhlutfall á lóðinni hækkar úr 0,30 í 0,32 við breytinguna. Samþykki lóðarhafa Skjólbrautar 6, Borgarholtsbrautar 5 og 7 liggur fyrir.
Uppdrættir í mælikvarða 1:100 dags. 14. ágúst 2022.
Samþykkt var með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga verði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Skjólbrautar 5, 6, 7, 10, Borgarholtsbrautar 5, 7 og 9.
Kynningartíma lauk 28. október 2022, engar athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir framlagða tillögu.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Kristinn D. Gissurarson vék af fundi kl. 18:45
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
10.6 - 22114380 - Vesturvör 22 - 24. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram umsókn Scala arkitekta f.h. lóðarhafa dags. 7. nóvember 2022 um breytingu á deiliskipulagi lóðanna nr. 22 og 24 við Vesturvör.
Í breytingunni felst að heiti lóðanna verði Hafnarbraut 16 (áður Vesturvör 24) og Hafnarbraut 18 (áður Vesturvör 22) þar sem aðkoma er ráðgerð frá Hafnarbraut. Lóðirnar stækki til norðurs samanlagt um 394,8 m², úr 5.135 m² í 5.529,8 m² og að í stað eins byggingarreits verði tveir stakstæðir byggingarreitir á lóðunum, einn á hvorri lóð. Heildarbyggingarmagn á lóðunum eykst um 4.990 m², úr 8.400 m² í 13.390 m² og íbúðum fjölgar um 32, úr 59 í 91 samtals á báðum lóðunum. Nýtingarhlutfall á lóðunum eykst úr 1.6 í 2.4 ofanjarðar og neðanjarðar á báðum lóðunum. Nýtingarhlutfall á Hafnarbraut 16 verður 2,15 og nýtingarhlutfall á Hafnarbraut 18 verður 2,69. Bílastæðum fjölgar um 15, úr 81 í 96 samanlagt á báðum lóðunum.
Uppdráttur í mvk. 1:1000 ásamt skýringarmyndum dags. 7. nóvember 2022.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst, með sex atkvæðum. Helga Jónsdóttir sat hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
10.7 - 2211020 - Dalvegur 18. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram umsókn Kristjáns Ásgeirssonar arkitekts f.h. lóðarhafa dags. 18. október 2022 um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar nr. 18 við Dalveg. Í breytingunni felst hækkun byggingarreits á matshluta 02 á lóðinni úr tveimur hæðum í þrjár hæðir. Byggingarmagn á lóðinni aukist um 1.120 m² og verði alls 10.210 m². Nýtingarhlutfall á lóðinni verði 0.51. Þá er gert ráð fyrir tengingu á milli bílastæða á norðurhluta og austurhluta lóðarinnar.
Uppdráttur í mkv. 1:1000 ásamt skýringarmyndum og greinargerð ódags.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að framlögð tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
10.8 - 2207058 - Arnarnesvegur 3. áfangi. Umsókn um framkvæmdaleyfi.
Lögð fram að nýju umsókn Vegagerðarinnar dags. 1. júlí 2022 um framkvæmdaleyfi fyrir 3. áfanga Arnarnesvegar sem liggur milli Rjúpnavegar í Kópavogi og Breiðholtsbrautar í Reykjavík. Umsóknin er sett fram í greinargerð dags. 1. júní 2022 ásamt fylgiskjölum, skýringarmyndum og teikningahefti frá Verkís verkfræðistofu dags. apríl 2022.
Framkvæmdin er í samræmi við fyrirliggjandi áætlanir, Svæðisskipulag höfuðborgarsvæðisins, Aðalskipulag Kópavogs 2019-2040 og deiliskipulag Arnarnesvegar dags. 13. maí 2022. Lögð er fram matsskýrsla dags. febrúar 2003 þar sem lagt er mat á umhverfisáhrif framkvæmdarinnar. Einnig lögð fram ákvörðun Skipulagsstofnunar um matsskyldu dags. 16. febrúar 2021.
Á fundi skipulagsráðs 15. ágúst 2022 var afgreiðslu málsins frestað.
Deiliskipulag Arnarnesvegar, 3. áfangi, frá Rjúpnavegi að Breiðholtsbraut tók gildi þann 28. október 2022.
Þá er lögð fram greinargerð Kópavogsbæjar og Reykjavíkurborgar dags. 10. nóvember 2022 um framkvæmdaleyfi í samræmi við 2. mgr. 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010.
Skipulagsráð samþykkir veitingu framkvæmdaleyfis með tilvísun í 13. og 14. gr. skipulagslaga nr. 123/2010, með sex atkvæðum. Kristinn D. Gissurarson sat hjá við afgreiðslu málsins.
Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
- Greinargerð_Arnarnesvegur_221107
- Arnarnesvegur - umsókn framkvleyfi 01.07.2022 - KOP undirr
- Fylgiskjöl-Myndir
- Fylgiskjöl-ValdarTeikningar
- Fylgiskjöl-VerkhönnunSamsettarTeikningar01
- Fylgiskjöl-VerkhönnunSamsettarTeikningar02
- Fylgiskjöl-VerkhönnunSamsettarTeikningar03
- Vg - Minnisblað Uppsetning mæla BÞ 25.08.2022
- Minnisblað NI_Uttekt_blatoppa_3. afangi Arnarnesvegar_2022
- Uppdráttur B-deild, undirritaður 1 (1)
- ArnarnesvegurMatsskýrsla - lokaskýrsla 1
- 202010086
- 2207058 - glærur skipulagsráð 131(1)
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í þremur liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í sjö liðum.
Lagt fram.
Fundargerð verkefnahóps um uppbyggingu á Skíðasvæðunum frá 28.10.2022
Lagt fram.
Fundargerð 546. fundar stjórnar SSH frá 07.11.2022
Lagt fram.
Fundargerð 99. fundar Markaðsstofu Kópavogs frá 04.11.2022
Lagt fram.
Hákon Gunnarsson vék af fundi kl. 10:00
17
Ósk bæjarfulltrúa Bergljótar Kristinsdóttur um að hafin verði vinna við uppsetningu á tímaramma og ferilsgreiningu á verkefninu Kópavogur - kolefnishlutlaust sveitarfélag
Frá bæjarfullrúa Bergljótu Kristinsdóttur, lögð fram tillaga um að hafin verði vinna við uppsetningu á tímaramma og ferilsgreiningu á verkefninu Kópavogur - kolefnishlutlaust sveitarfélag, sem byggir á lögum um loftslagsmál nr. 70/2012, sem tóku gildi 25. júní 2021 og drögum að Loftlagsstefnu og aðgerðaráætlun höfuðborgarsvæðisins í loftlagsmálum.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fresta málinu til næsta fundar.
18
Ósk bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteindóttur um langtímaáætlun er varðar uppbyggingu á grunnskólum og leikskólum í Kópavogi
Frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteindóttur, lögð fram beiðni um langtímaáætlun er varðar uppbyggingu á grunnskólum og leikskólum í Kópavogi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til sviðsstjóra umhverfissviðs og menntasviðs.
Frá bæjarfulltrúa Helgu Jónsdóttur, lagðar fram eftirfarandi fyrirspurnir:
Hvaða breytingar hafa bæjaryfirvöld samþykkt á byggingarmagni á einstökum þróunarreitum á Kársnesi frá þeim áformum sem kynnt voru í deiliskipulagslýsingunni frá 14. október 2016? Hverjar eru fyrirliggjandi niðurstöðutölur varðandi byggingarmagn?
Hvaða lóðagjöld hafa verið innheimt á hverjum reit fyrir sig?
Hvaða framlag var innheimt sérstaklega hjá hverjum framkvæmdaraðila til byggja upp og styrkja innviði, t.d. veitur, fráveitu, götur og gangstéttir, og nýja uppbyggingu bæjarins vegna vaxandi álags?
Liggja fyrir sérstakir útreikningar á viðbótarálagi á veitu- og gatnakerfi vegna starfsemi SkyLagoon?
Bæjarráð samþykkir að vísa erindinu til sviðstjóra umhverfissviðs.
20
Tillaga bæjarfulltrúa Sigurbjargar Erlu Egilsdóttur um véllæsileg gögn á vef Kópavogsbæjar
Frá bæjarfulltrúa Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur, lögð fram tillaga um véllæsileg gögn á vef Kópavogsbæjar.
Bæjaráð samþykkir með fimm atvæðum að vísa tillögunni til afgreiðslu sviðsstjóra stjórnsýslusviðs.