Æfingavöllur Breiðablik
Málsnúmer: 23121171
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3182. fundur
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 07.08.2024, lögð fram beiðni um heimild töku 3ja tilboða og heimildar til að ganga til samninga við framkvæmdaraðila.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum töku tilboðanna þriggja og að veita framkvæmdadeild heimild til að ganga til samninga þess efnis.
02
Bæjarráð - 3180. fundur
Frá framkvæmdadeild, dags. 1. júlí 2024, lögð fram beiðni um heimild til útboðs á síðustu tveimur hlutum af þremur fyrir nýjan æfingavöll Breiðabliks við Fífuna.
Bæjarráð, í umboði bæjarstjórnar, staðfestir með fimm atkvæðum umbeðna heimild til útboðs á a.v. útvegun og framkvæmd á ljósamöstrum og lýsingu vallar, h.v. útvegun og lagningu á gervigrasi.
03
Bæjarráð - 3179. fundur
Frá deildarstjóra innkaupadeildar, dags. 24.06.2024, lagt fram erindi þar sem er óskað er eftir heimild bæjarráðs til að hefja fyrsta útboð af þremur fyrir nýjan æfingavöll Breiðabliks í Fífuna. Um er að ræða útboð á jarðvinnu og lögnum sbr. hjálögð útboðsgögn unnin af VSÓ verkfræðistofu.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna heimild til útboðs á fyrsta hluta af þremur fyrir nýjan æfingavöll Breiðabliks í Fífunni, með fyrirvara um jákvæða afgreiðslu skipulagsráðs á breytingu á deiliskipulagið svæðisins.