Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3215. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Andri Steinn Hilmarsson - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi

Starfsmenn

  • Ása Arnfríður Kristjánsdóttir - bæjarlögmaður

Ritari

  • Ása A. Kristjánsdóttir

Dagskrá fundar

01

Staða uppbyggingar nýs Kársnesskóla

Frá umhverfissviði, lögð fram stöðuskýrsla fyrir stöðu uppbyggingar Kársnesskóla ásamt minnisblaði lögmanns.

Lagt fram og kynnt. Gestir yfirgáfu fundinn kl. 8:54.

Umræður.

Bæjarráð óskar eftir að fá upplýsingar um áfallinn kostnað og áætlaða lokaniðurstöðu vegna verksins á næsta fund bæjarráðs.

02

Breytingar á skipulagi og starfsumhverfi leikskóla Kópavogsbæjar - Viðhorfskannanir

Frá sviðsstjóra menntasviðs, lagt fram svar fyrir fyrirspurn bæjarfulltrúa Pírata varðandi mönnun á leikskólum í Kópavogi.

Lagt fram.

03

Erindi varðandi Hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar

Frá Landssamtökum hjólreiðarmanna, dags. 22.05.2025, lagt fram erindi varðandi hjólreiðaáætlun Kópavogsbæjar.

Bæjarráð óskar er eftir greinargerð frá umhverfissviði sem inniheldur upplýsingar um forsögu málsins og stöðu þess í dag.

04

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 418. fundur frá 09.05.2025

Fundargerð í átta liðum.

Vísað til staðfestingar bæjarstjórnar.

05

Innkaupanefnd - 3. fundur frá 05.05.2025

Fundargerð í fjórum liðum. Fundargerðinni var frestað á fundi bæjarráðs þann 08.05.2025.

Lagt fram.

06

Öldungaráð - 28. fundur frá 07.05.2025

Fundargerð í átta liðum.

Lagt fram.


6.3 - 2002676 - Aðgerðaáætlun velferðarsviðs 2025

Verkefnastjóri velferðarsviðs kynnir aðgerðaáætlun velferðarsviðs vegna ársins 2025.

Öldungaráð þakkar Jóhönnu Lilju Ólafsdóttur verkefnisstjóra velferðarsviðs góða kynningu á fyrirliggjandi aðgerðaráætlun velferðarsviðs vegna ársins 2025.

Öldungaráð telur nauðsynlegt að skoða aðgerðir til að rjúfa félagslega einangrun eldra fólks. Þekkt er að félagsleg einangrun er raunverulegt og alvarlegt vandamál í nútíma samfélögum og áhættuþáttur varðandi andlega og líkamlega heilsuskerðingu. Bent er sérstaklega á að úrræði skorti fyrir karlmenn, t.d. úrræði á borð við "Karlar í skúrum".

Öldungaráð skorar á bæjarstjórn að skoða möguleika á að koma upp úrræði á borð við "Karlar í skúrum" sem markvissa aðgerð til að rjúfa félagslega einangrun.



6.4 - 25021243 - Upplýsingar um biðlista eftir stuðningsþjónustu

Á fundi sínum þann 10. febrúar sl. undir liðnum Tölulegar upplýsingar velferðarsviðs, lagði velferðar- og mannréttindaráð Kópavogsbæjar fram eftirfarandi bókun:

Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir að fá yfirlit yfir lengd biðtíma eftir félagslegri þjónustu: Hversu lengi hafa þeir beðið sem hafa verið lengst á biðlista eftir þjónustu velferðarsviðs?

Á fundi velferðar- og mannréttindaráðs Kópavogsbæjar þann 10. mars undir liðnum, 25021243-Velferðar- og mannréttindaráð óskar eftir upplýsingum um biðlista, var lagt fram minnisblað velferðarsviðs, dags. 3. mars.

Minnisblað velferðarsviðs er hér með kynnt öldungaráði.

Í minnisblaði vegna biðlista dags. 3.3.2025 kemur fram að þjónusta við nýjan notanda fer ekki af stað fyrr en annar notandi hættir að þiggja þjónustu. Í febrúarmánuði 2025 voru 29 einstaklingar á bið eftir þjónustu og hefur biðlistinn lengst síðan.
Kópavogsbær sem sveitarfélag hefur vaxið mikið á undanförnum árum og heldur enn áfram að vaxa. Fjöldi stöðugilda í félagslegri heimaþjónustu hefur þó ekki aukist í hlutfalli við fjölgun fólks með stuðningsþarfir. Öldungaráð skorar á bæjarstjórn að forgangsraða fjármagni í þágu þjónustu við eldra fólk í samræmi við markmið um að styðja fólk til að búa sem lengst heima.


07

Leikskólanefnd - 171. fundur frá 08.05.2025

Fundargerð í sjö liðum.

Lagt fram.

08

Velferðar- og mannréttindaráð - 5. fundur frá 12.05.2025

Fundargerð í tíu liðum.

Lagt fram.

09

Fundargerð 605. fundar stjórnar SSH frá dags 05.05.2025

Fundargerð 605. fundar stjórnar SSH frá dags 05.05.2025.

Lagt fram.