Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Staða uppbyggingar nýs Kársnesskóla

Málsnúmer: 23042054

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3219. fundur

Bæjarráð óskaði á fundi sínum 15.05.2025 eftir að fá upplýsingar um áfallinn kostnað og áætlaða lokaniðurstöðu vegna verksins á næsta fund bæjarráðs. Nú lagðar fram upplýsingar um áætlaða lokaniðurstöðu verksins.

Kynning og umræður.

Bókun;

"Undirrituð óskar eftir því að fá rökstuðning fyrir því hvers vegna uppgjörið er trúnaðarmál."

Theódóra S. Þorsteinsdóttir


Fundarhlé hófst kl. 10:13, fundi fram haldið kl. 10:25


Bókun:

"Óskað hefur verið eftir rökstuðningi fyrir því hvers vegna uppgjörið er trúnaðarmál í fundargerð. Það er vegna þess að Kópavogur stendur í málaferlum gegn fyrrum verktaka og í samræmi við ráðleggingar lögfræðinga bæjarins er ekki unnt að birta allar upplýsingar opinberlega að svo stöddu. Trúnaður er nauðsynlegur til að gæta hagsmuna Kópavogsbæjar á meðan á málaferlunum stendur."

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Andri Steinn Hilmarsson

02

Bæjarráð - 3215. fundur

Frá umhverfissviði, lögð fram stöðuskýrsla fyrir stöðu uppbyggingar Kársnesskóla ásamt minnisblaði lögmanns.

Lagt fram og kynnt. Gestir yfirgáfu fundinn kl. 8:54.

Umræður.

Bæjarráð óskar eftir að fá upplýsingar um áfallinn kostnað og áætlaða lokaniðurstöðu vegna verksins á næsta fund bæjarráðs.

03

Bæjarstjórn - 1317. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs lögð fram stöðuskýrsla fyrir stöðu uppbyggingar Kársnesskóla.

04

Bæjarráð - 3209. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs lögð fram stöðuskýrsla fyrir stöðu uppbyggingar Kársnesskóla.

Umræður og kynning.

Jóhannes Karl vék af fundi kl. 8:35 og aðrir gestir véku af fundi kl. 8:57.

05

Bæjarráð - 3178. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir apríl 2024.

Kynning og umræður.

06

Bæjarráð - 3173. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir febrúar og mars 2024.

Kynning og umræður.

07

Bæjarráð - 3166. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir janúar 2024.

Kynning og umræður.

08

Menntaráð - 125. fundur

Kynning á stöðu byggingar og tímalínu.

Lagt fram.

09

Bæjarráð - 3161. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir desember 2023.

Mánaðarskýrsla kynnt.

"Undirrituð óskar eftir því að kafli um fjármál verði aftur settur inn í mánaðarskýrsluna og að bæjarráð verði betur upplýst um framvindu fjármála verkefnisins. Einnig er óskað eftir því að allur annar aukakostnaður sem fallið hefur á verkið sé dreginn saman með reglubundnum hætti og kynntur bæjarráði.

Theodóra S. Þorsteinsdóttir "

10

Bæjarráð - 3156. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir nóvember.

Lagt fram og rætt.

11

Bæjarráð - 3153. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir október.

12

Bæjarráð - 3151. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir október.

Lagt fram.

13

Bæjarráð - 3147. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, lögð fram mánaðarskýrsla fyrir september.

Lagt fram og rætt.

14

Bæjarráð - 3141. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, lagt fram uppfært skipurit um verkið uppbygging nýs Kársnesskóla. Einnig lagt fram minnisblað lögmanns dags. 04.09.2023 ásamt mánaðarskýrslu fyrir ágúst.

Lagt fram og rætt.

15

Bæjarráð - 3140. fundur

Frá umhverfissviði, lagt fram skipurit yfir verkið uppbygging nýs Kársnesskóla.

Bergljót Kristinsdóttir kom til fundarins kl. 8:18.

Lagt fram. Bæjarstjóra falið að leggja fram endurskoðað skipurit á næsta fundi bæjarráðs.

16

Bæjarráð - 3138. fundur

Deildarstjóri framkvæmda umhverfissviðs, ásamt gestum gera grein fyrir stöðu málsins.

Umræður.

17

Bæjarráð - 3134. fundur

Sviðsstjóri umhverfissvið gerir grein fyrir stöðu málsins.

Farið yfir stöðu málsins.

18

Menntaráð - 115. fundur

Gerð grein fyrir stöðu byggingar á nýjum Kársnesskóla.

Ásthildur Helgadóttir, sviðstjóri umhverfissviðs, kynnti stöðu byggingar.

19

Bæjarráð - 3130. fundur

Sviðsstjóri stjórnsýslusviðs greindi frá stöðu málsins.

Umræður

20

Menntaráð - 114. fundur

Gerð grein fyrir stöðu byggingar nýs Kárnesskóla.

Lagt fram.

21

Bæjarstjórn - 1278. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 25.04.2023, lagðar fram upplýsingar um stöðu uppbyggingar nýs Kársnesskóla, ásamt minnisblaði lögmanns Kópavogbæjar er varðar málefnið dags. 25.04.2023. Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum 27. apríl og fól sviðsstjóra umhverfissviðs að taka saman frekari upplýsingar fyrir næsta fund. Nú lögð fram umbeðin gögn.

Bæjarráð - 3128

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum gegn atkvæði Theódóru S. Þorsteinsdóttur að veita heimild til riftunar verksamnings um byggingu Kársnesskóla fyrir sitt leyti og vísar málinu til staðfestingar bæjarstjórnar.

Bókun:

„Mikilvægt er að bregðast við þeirri alvarlegu stöðu sem upp er komin í framkvæmd nýs Kársnesskóla. Undirrituð telja að Kópavogsbær geti ekki lengur unað við alvarlegar og viðvarandi vanefndir aðalverktaka Kársnesskóla. Ítrekaðar áskoranir til verktakans um að koma verkinu á réttan kjöl hafa ekki borið árangur og væntingar um að verkið klárist með fullnægjandi hætti undir stjórn hans þverrandi. Óhjákvæmilegt er því annað en að teknar verði nauðsylegar ákvarðanir til að koma verkinu í viðunandi horf með hagsmuni íbúa að leiðarljósi.“

Ásdís Kristjánsdóttir,

Orri V. Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Kolbeinn Reginsson

Bergljót Kristinsdóttir



Niðurstaða bæjarstjórnar:

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs um heimild til riftunar með 8 atkvæðum gegn atkvæði Theódóru S. Þorsteinsdóttur og hjásetu Sigurbjargar E. Egilsdóttur og Bergljótar Kristinsdóttur.

Fundarhlé hófst kl. 19:38, fundi fram haldið kl. 19:50.

Bókun:

"Riftun getur haft í för með sér umtalsverða röskun á byggingu nýs Kársnesskóla. Bæði geta orðið tafir á verkinu auk þess sem kostnaður mun að öllum líkindum aukast, enda er líklegt að dýrara sé að fá aðra verktaka til verksins. Þá hafa verktakaskipti almennt neikvæð áhrif á ábyrgð á gæðum verksins, sem verður óskýrari eftir því sem fleiri koma að því. Verktaki hefur í samskiptum sínum við Kópavogsbæ haldið fram vanefndum bæjarins og gert kröfu um framlengingu á verktíma og bætur vegna þess. Undirritaðar telja mikilvægt að leita allra leiða til þess að ná samningum við núverandi verktaka um að ljúka verkinu."

Sigurbjörg E. Egilsdóttir

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir

Fundarhlé hófst kl. 19:52, fundi fram haldið kl. 20:07.


Bókun:

„Mikilvægt er að bregðast við þeirri alvarlegu stöðu sem upp er komin í byggingu nýs Kársnesskóla. Undirrituð telja að Kópavogsbær geti ekki lengur unað við alvarlegar og viðvarandi vanefndir aðalverktaka Kársnesskóla. Ítrekaðar áskoranir til verktakans um að koma verkinu á réttan kjöl hafa ekki borið árangur og væntingar um að verkið klárist með fullnægjandi hætti undir stjórn hans fara þverrandi. Óhjákvæmilegt er því að heimilað verði að taka nauðsynlegar ákvarðanir til að koma verkinu í viðunandi horf með hagsmuni íbúa að leiðarljósi.“

Ásdís Kristjánsdóttir

Orri V. Hlöðversson

Hjördís Ýr Johnson

Hannes Steindórsson

Sigrún Hulda Jónsdóttir

Elísabet B. Sveinsdóttir

Helga Jónsdóttir

Thelma Árnadóttir

22

Bæjarráð - 3128. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 25.04.2023, lagðar fram upplýsingar um stöðu uppbyggingar nýs Kársnesskóla, ásamt minnisblaði lögmanns Kópavogbæjar er varðar málefnið dags. 25.04.2023. Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum 27. apríl og fól sviðsstjóra umhverfissviðs að taka saman frekari upplýsingar fyrir næsta fund. Nú lögð fram umbeðin gögn.

Trúnaðarmál.

23

Bæjarráð - 3127. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags. 25.04.2023, lagðar fram upplýsingar um stöðu uppbyggingar nýs Kársnesskóla, ásamt minnisblaði lögmanns Kópavogbæjar er varðar málefnið dags. 25.04.2023.

Bæjarráð frestar málinu á milli funda og felur sviðsstjóra umhverfissviðs að taka saman frekari upplýsingar fyrir næsta fund ráðsins í samræmi við umræður fundarins.