Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Kynning á fýsileika samræmingar úrgangsflokkunar - skýrsla

Málsnúmer: 2101495

Ferill máls

01

Bæjarstjórn - 1234. fundur

Frá SSH, dags. 20. janúar, lögð fram skýrsla um samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu til kynningar og umræðu hjá aðildarsveitarfélögum. Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum þann 28. janúar sl.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að hafin verði vinna við samræmda úrgangsflokkun á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt tillögu A1 í skýrslu Recource Int. ehf. um fýslileika úrgangsflokkunar.

02

Bæjarráð - 3039. fundur

Frá SSH, dags. 20. janúar, lögð fram skýrsla um samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu til kynningar og umræðu hjá aðildarsveitarfélögum. Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum þann 28. janúar sl.

Bæjarráð tekur undir afgreiðslu umhverfis- og samgöngunefndar og samþykkir með fimm atkvæðum, að leggja til við bæjarstjórn að samþykkt verði að hefja vinnu við samræmda úrgangsflokkun á höfuðborgarsvæðinu samkvæmt tillögu A1 í skýrslu Recource Int. ehf. um fýslileika úrgangsflokkunar.

03

Bæjarráð - 3038. fundur

Lögð fram skýrsla um samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu ásamt minnisblaði starfshóps SSH um málið. Erindið var lagt fyrir bæjarráð 28. janúar síðastliðinn þar sem því var frestað til að vera lagt fram í ráðum og nefndum sveitarfélagsins.

04

Umhverfis- og samgöngunefnd - 137. fundur

Lögð fram skýrsla um samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu ásamt minnisblaði starfshóps SSH um málið. Erindið var lagt fyrir bæjarráð 28. janúar síðastliðinn þar sem því var frestað til að vera lagt fram í ráðum og nefndum sveitarfélagsins.

Umhverfis- og samgöngunefnd leggur áherslu á að samræma flokkun á höfuðborgarsvæðinu og samþykkir framlagða tillögu að leið A1. Nefndin leggur áherslu á fjóra strauma úrgangsflokkunar, sérsöfnun við heimili og að það verði samþykkt af öllum sveitarfélögum á höfuðborgarsvæðinu.

05

Bæjarráð - 3033. fundur

Frá SSH, dags. 20. janúar, lögð fram skýrsla um samræmingu úrgangsflokkunar á höfuðborgarsvæðinu til kynningar og umræðu hjá aðildarsveitarfélögum.

Bæjarráð frestar erindinu.