Tillaga bæjarfulltrúa Einars Jóhannesar Guðnasonar um áramótabrennu í Kópavogi
Málsnúmer: 26103999
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3272. fundur
Frá umhverfissviði, dags. 09.11.2026, lögð fram umsögn um tillögu bæjarfulltrúa Miðflokksins um áramótabrennu í Kópavogi.
Bæjarráð frestaði erindinu 12.11.2026 og sammældist um að skoða möguleikann á því að skapa fyrirkomulag sem býður upp á þátttöku úr samfélaginu um smærri áramótabrennur, t.d. eina í hverju póstnúmeri.
Umræður.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að fela bæjarstjóra að útfæra og kanna áhuga íbúa og félagasamtaka til nýs fyrirkomulags brennuhalds. Lagt sé upp með að kanna hvort brennur geti verði í hverju póstnúmeri.
02
Bæjarráð - 3271. fundur
Frá umhverfissviði, dags. 09.11.2026, lögð fram umsögn um tillögu bæjarfulltrúa Miðflokksins um áramótabrennu í Kópavogi.
Bæjarráð frestar erindinu og sammælist um að skoða möguleikann á því að skapa fyrirkomulag sem býður upp á þátttöku úr samfélaginu um smærri áramótabrennur, t.d. eina í hverju póstnúmeri.
Gestur vék af fundi kl. 8:41
03
Bæjarráð - 3269. fundur
Frá bæjarfulltrúa Miðflokksins, dags. 27.10.2026, lögð fram tillaga um áramótabrennu í Kópavogi.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.