Bæjarráð - 3041. fundur
Fjarfundur - Microsoft Teams
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllSigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarlögmaður
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá bæjarstjóra, lagður fram samningur við Lionsklúbb Kópavogs um endurbætur og uppbyggingu á Kópavogsbænum að Kópavogstúni 14.
Fundarhlé hófst kl. 8:17, fundi fram haldið kl. 9:30
Bæjarráð frestar erindinu.
Frá sviðsstjórum umhverfis- og menntasviðs, dags. 22. mars, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að fara í útboð á endurgerð álmu 5 í Álfhólsskóla. Einnig er óskað eftir viðbótarfjárveitingu til verksins.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðna heimild og vísar fjármögnun verkefnisins til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Frá deildarstjóra framkvæmdadeildar, dags. 11. mars, lagðar fram niðurstöður útboðs vegna byggingar nýs Kárnesskóla þar sem lagt er til að leitað verði samninga við lægstbjóðanda Rizziani de Eccher. Bæjarráð frestaði málinu á fundi sínum þann 18. mars sl.
Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Theódóru S. Þorsteinsdóttur að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
Frá forstöðumanni upplýsingatæknideildar, dags. 16. mars, lagt fram erindi þar sem óska er eftir heimild til að ganga til samninga við Stefnu ehf. um þróun á þjónustuappi. Bæjarráð frestaði málinu til næsta fundar á fundi sínum þann 11. febrúar sl.
Bæjarráð frestar málinu.
Bókun:
"Undirritaður bendir á að flest af því sem er í appinu á að vera aðgengilegt annarstaðar fyrir íbúa Kópavogs. Undirritaður telur að farsælla sé að fara með þetta verkefni inn í samstarfsvettvang um stafrænt ráð sveitarfélaganna sem verið er að koma á laggirnar."
Pétur H. Sigurðsson
Fundarhlé hófst kl. 10:44, fundi fram haldið kl. 11:01
Frá lögfræðideild, dags. 17. mars, lögð fram umsögn um beiðni um endurupptöku máls vegna Hlíðarvegar 26.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum endurupptöku málsins og vísar því til nýrrar málsmeðferðar.
Frá lögfræðideild, dags. 22. mars, lögð fram niðurstaða úrskurðarnefndar umhverfis- og auðlindamála í máli nr. 131/2020.
Lagt fram.
Frá Sigríði Önnu Guðnadóttur, dags. 16. mars, lögð fram beiðni um endurupptöku máls vegna Lækjarbotnalands 15.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til umsagnar bæjarlögmanns.
Frá Vistbyggð ehf., dags. 18. mars, lagt fram erindi um uppbyggingu á lóðinni Dalvegi 1 þegar Sorpa hverfur af lóðinni.
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.
Frá hópnum Áhugafólki um samgöngur fyrir alla, lagt fram erindi um BRT-lite hraðvagnakerfi.
Lagt fram.
10
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna stuðnings til smærri innlendra áfengisframleiðenda, 495. mál
Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 16. mars, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsumlögum vegna stuðnings til smærri innlendra áfengisframaleiðenda og heimildar til sölu áfengis á framleiðslustað (þingmannafrumvarp).
Lagt fram.
11
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga, 585. mál
Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 16. mars, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á ýmsum lögum vegna laga um persónuvernd og vinnslu persónuupplýsinga (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
12
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga, 602. mál
Frá allsherjar- og menntamálanefnd Alþingis, dags. 18. mars, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á lögum um útlendinga og lögum um atvinnuréttindi útlendinga (stjórnarfrumvarp).
Bæjarráð samþykkir að vísa málinu til afgreiðslu bæjarlögmanns.
13
Til umsagnar frumvarp ti laga um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis (fjölgun jöfunarsæta), 496. mál
Frá stjórnskipunar- og eftirlitsnefnd Alþingis, dags. 16. mars, lagt fram til umsagnar frumvarp ti laga um breytingu á lögum um kosningar til Alþingis (þingmannafrumvarp).
Lagt fram.
14
Til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (borgarafundir, íbúakosningar um einstök mál), 491. mál
Frá umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis, dags. 16. mars, lagt fram til umsagnar frumvarp til laga um breytingu á sveitarstjórnarlögum (þingmannafrumvarp).
Lagt fram.
Fundargerð í 8. liðum.
Lagt fram.
15.3 - 2103448 - Garðlönd - Fyrirkomulag og gjald 2021
Frá Umhverfissviði lögð fram tillaga að fyrirkomulagi og gjaldi fyrir garðlönd Kópavogs 2021.
Umhverfis- og samgöngunefnd samþykkir framlagða tillögu að fyrirkomulagi og gjaldi fyrir garðlönd árið 2021. Vísað til bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fundargerð í 11 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 5 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 6 liðum.
Lagt fram.