Bæjarráð - 2943. fundur
á Digranesvegi 1, bæjarráðsherbergi - Víghóll
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
Starfsmenn
- Páll Magnússon - bæjarritari
Ritari
- Páll Magnússon
Dagskrá fundar
01
Afrit gagna frá úrbótahópnum vegna stefnumótunarvinnu Kópavogsbæjar. Frá Pírötum, Samfylkingu og BF Viðreisn.
Frá sviðsstjórum stjórnsýslu-, umhverfis, velferðar- og menntasviðs, lögð fram skýrsla um starf úrbótahópa vegna stefnumótunarvinnu Kópavogsbæjar, sbr. beiðni frá bæjarfulltrúum Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar á fundi bæjarráðs þann 17. janúar sl.
Hlé var gert á fundi kl. 8.21. Fundi var fram haldið kl. 8:48.
Gestir viku af fundi kl. 8.21.
Formaður lagði til að afgreiðslu yrði frestað og var það samþykkt með atkvæðum Birkis Jóns Jónssonar og Karenar Halldórsdóttur.
02
Afgreiðsla erinda og ákvarðanataka um hvaða erindi berast kjörnum fulltrúum. Fyrirspurn frá Pírötum, Samfylkingu og BF Viðreisn.
Frá bæjarritara, dags. 21. janúar, lagt fram svar við fyrirspurn um reglur og ferla sem gilda um afgreiðslu erinda sem berast til bæjarins.
Lagt fram.
Pétur Hrafn Sigurðsson og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir þakka fyrir framlagt svar. Theódóra S. Þorsteinsdóttir þakkar einnig framlagt svar.
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 22. janúar, lagt fram erindi þar sem óskað er heimildar bæjarráðs til að fara í opið útboð á grasslætti í bænum vegna ársins 2019.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að farið verið í opið útboð vegna grassláttar í bænum árið 2019.
Frá sérfræðingi í starfsmannadeild, dags. 22. janúar, lögð fram til samþykktar drög 2 að auglýsingu um skrá yfir þau störf hjá Kópavogsbæ sem eru undanskilin verkfallsheimild.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum svo breytta auglýsingu yfir störf sem undanskilin eru verkfallsheimild.
Frá sviðsstjóra menntasviðs, dags. 22. janúar, lögð fram til kynningar aðgerðaáætlun til umbóta í starfsumhverfi leikskóla Kópavogs til framtíðar, með velferð og vellíðan barna að leiðarljósi.
Jafnframt er óskað sérstakrar samþykktar bæjarráðs á fyrirkomulagi skipulagsdaga og stækkun á rými barna í leikskólum Kópavogs.
Bæjarráð frestar afgreiðslu málsins.
Fundargerð í 5. liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 5. liðum
Lagt fram.
Fundargerð í 65. liðum.
Lagt fram.
8.1 - 1810582 - Gerðarsafn leggur fram drög að verklagsreglum um greiðslur til listamanna fyrir sýningarstörf til samþykktar
Forstöðumaður Gerðarsafns kynnir hugmyndir að samningi við listamenn.
Varðandi verklagsreglur um greiðslur til listamanna vegna sýningahalds.
Kristín Dagmar Jóhannesdóttir forstöðumaður Gerðarsafns upplýsti lista- og menningarráð um að Samtök íslenskra myndlistamanna (SÍM) hafi gert samninga við t.d. Reykjavíkurborg, Hafnarfjörð, Akureyri og söfn í eigu ríkisins um samræmdar þóknanir til listamanna.
Lista og menningarráð óskar eftir því að bæjarráð ræði kostnað við sýningarhald í Gerðarsafni sem rúmast ekki innan núverandi fjárhagsáætlunar. Ljóst er að forstöðumaður Gerðasafns þarf að breyta sýningarhaldi fyrir árið 2019 ef fjármögnun og samningar nást ekki við SÍM.
Bæjarráð beinir því til lista- og menningarráðs að rekstur Gerðarsafns rúmist innan fjárhagsáætlunar.
- Gerðarsafn-Viðauki_Verklagsreglur2018
- Listasafn Reykjavíkur_Verklagsreglur_Greiðslur til listamanna
- Listasafn Reykjavíkur_Viðauki við verklagsreglur
- áætlun um þóknun skv. verklagsreglum2018
- Gerðarsafn_Verklagsreglur_Greiðslur til listamanna2018
- Tillaga að verklagsreglum Gerðarsafns
- Listasafnið á Akureyri_Verklagsreglur_Greiðslur til listamanna
- Listasafnið á Akureyri_Viðauki við verklagsreglur
- Framlagssamningur SÍM_Greinargerð
- Frá Gerðarsafni, drög að verklagsreglum um greiðslur til listamanna til samþykktar
Fundargerð í 14. liðum.
Lagt fram.
9.10 - 1810455 - Digranesheiði 39. Kynning á byggingaleyfi.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Andrésar Narfa Andréssonar arkitekts f.h. lóðarhafa Digranesheiðar 39 um breytingar á núverandi íbúðarhúsi á lóðinni. Í breytingunni felst að núverandi anddyri er fjarlægt og viðbygging til suðurs reist við húsið. Byggingarmagn á lóðinni eykst úr 202 m2 í 219,4 m2 við breytinguna eða um 17,4 m2. Nýtingarhlutfall á lóðinni eftir breytingu verður 0,33. Á fundi skipulagsráðs 15. október 2018 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillagan yrði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Digranesheiði 26, 28, 30, 37, 41, Lyngheiði 18 og 20. Athugasemdafresti lauk 11. janúar 2019. Engar ábendingar eða athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.11 - 1804615 - Hlíðarvegur 40. Kynning á byggingarleyfi.
Lagt fram að nýju að lokinni kynningu erindi Hildar Bjarnadóttur arkitekts ásamt nýjum teikningum dags. 16. október 2018 fh. lóðarhafa Hlíðarvegs 40 þar sem óskað er eftir að fá skráningu á einbýli breytt í tvíbýli. Í breytingunni felst að íbúðum á lóðinni er fjölgað úr einni í tvær (ein íbúð sé á hvorri hæð hússins). Íbúð á efri hæð verður 150,5 m2 og íbúðkjallaraverður 76.8 m2. Jafnframt er gert ráð fyrir einu bílastæði á lóðinni. Uppdráttur í mkv. 1:100 dags. 16. október 2018. Á fundi skipulagsráðs 19. nóvember 2018 var samþykkt með tilvísan í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að tillagan yrði grenndarkynnt fyrir lóðarhöfum Hlíðarvegs 33, 35, 36, 37, 38, 39 42 og Reynihvamms 25, 27. Kynningartíma lauk 7. janúar 2019, athugasemdir bárust. Þá er lögð fram umsögn skipulags- og byggingardeildar dags. 18. janúar 2019.
Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.5 - 1803193 - Brú yfir Fossvog. Deiliskipulag.
Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga að deiliskipulagi brúar yfir Fossvog. Tillagan, dags. 1. október 2018, er unnin af Alta fh. Kópavogsbæjar og Reykjavíkurborgar og í samvinnu við Vegagerðina. Í tillögunni er gert ráð fyrir um 270 m langri brú yfir voginn frá Kársnesi, nánar tiltekið frá norðurenda Bakkabrautar að flugbrautarenda Reykjavíkurflugvallar. Markmið tillögunar er að bæta samgöngutengingar milli Reykjavíkur og Kópavogs og styðja við vistvæna samgöngukosti. Brúin verður fyrir umferð gangandi, hjólandi og almenningssamgöngur. Á fundi skipulagsráðs 1. október 2018 var samþykkt að tillagan yrði auglýst í samræmi við 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 og vísaði til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar. Á fundi bæjarstjórnar 9. október 2018 var afgreiðsla skipulagsráðs staðfest. Athugasemdafresti lauk 8. janúar 2019. Athugasemdir og ábendingar bárust. Þá lögð fram umsögn Alta f.h. skipulags- og byggingardeildar, um athugasemdir sem bárust á kynningartíma, dags. 21. janúar 2019.
Þóra Kjarval frá Alta gerir grein fyrir erindinu.
Skipulagsráð samþykkir erindið ásamt áorðnum breytingum dags. 21. janúar 2019 með tilvísan í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.8 - 1809231 - Tónahvarf 3. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga KRark fh. lóðarhafa að 160 m2 viðbyggingu við Tónahvarf 3. Á fundi skipulagsráðs 17. september 2018 var samþykkt með tilvísan til 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Tónahvarfs 4, 5, 6 og 8. Athugasemdafresti lauk 14. janúar 2019. Engar athugasemdir eða ábendingar bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið með tilvísan í 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
9.9 - 1809686 - Þinghólsbraut 27. Kynning á byggingarleyfi.
Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Sturlu Þórs Jónssonar, arkitekts fh. lóðarhafa Þinghólsbrautar 27 um að breyta einbýli í tvíbýli sbr. teikningar í mkv. 1:100 og 1:500 dags. Á fundi skipulagsráðs 1. október 2018 var málinu frestað þar sem ekki var gert grein fyrir fjölgun bílastæða á lóð. Þá lögð fram ný tillaga þar sem gert er grein fyrir fjölgun bílastæða á lóð. Í breytingunni felst að íbúð á efri hæð hússins og hluta neðri hæðar verði 223 m2 og íbúð á neðri hæð verði 94 m2, sameign verði 35 m2. Jafnframt er gert ráð fyrir þremur bílastæðum á lóð.
Á fundi skipulagsráðs 3. desember 2018 var samþykkt með tilvísan til 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að grenndarkynna tillöguna fyrir lóðarhöfum Þinghólsbrautar 19, 22, 23, 24, 25, 26, 27, 28, 29, 30, 31, 32, 33, 34, 35, 36, 37 og 38. Athugasemdafresti lauk 10. janúar 2019. Engar ábendingar eða athugasemdir bárust.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fundargerð í 5. liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 8. liðum.
Bæjarráð vísar lið 7 til umhverfis- og samgöngunefndar til úrvinnslu.
Fyrirspurn frá fulltrúum Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar: Á fundi bæjarráðs þann 8. júní 2017 var samþykkt tillaga frá Ólafi Þór Gunnarssyni, bæjarfulltrúa, um málshraða (mál nr. 17051880). Bæjarráð samþykkti þar að fela bæjarritara og -lögmanni að móta tillögur um meðferð mála sem bæjar- og nefndafulltrúar leggja fram í ráðum og nefndum bæjarins. Þá skyldu einnig mótaðar reglur um tíma sem tekur að svara málum, og gerðar tillögur um form svara sem lögð væru fram við formlegum fyrirspurnum. Er úrvinnslu þessarar tillögu lokið? Ef svo er, hverjar eru umræddar tillögur og reglur?
Bæjarráð vísar erindinu til bæjarritara til úrvinnslu.
Frá bæjarfulltrúum Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar,
Boðaþing hjúkrunarheimili - Í ljósi dóms Landsréttar frá 21. desember 2018 um að fella beri úr gildi lögbann sem sýslumaðurinn á höfuðborgarsvæðinu lagði við því að Framkvæmdasýsla ríkisins léti hönnunarsamkeppni fara fram um hönnun hjúkrunaríbúðanna við Boðaþing í Kópavogi þá óskum við eftir því að fulltrúar frá heilbrigðisráðuneytinu komi á næsta fund bæjarráðs og geri grein fyrir framvindu málsins.
Pétur Hrafn Sigðursson
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Theodóra S. Þorsteinsdóttir
Bæjarráð óskar eftir að fulltrúar heilbrigðisráðuneytis mæti á næsta fund bæjarráðs.
14
Gagnagátt fyrir bæjarfulltrúa Kópavogsbæjar. Tillaga frá Samfylkingu, BF Viðreisn og Pírötum
Bæjarfulltrúar Samfylkingar, BF Viðreisnar og Pírata leggja til að bæjarráð Kópavogs samþykki að komið verði upp gagnagátt fyrir bæjarfulltrúa Kópavogsbæjar.
Til að skilgreina þarfirnar og mögulega útfærslu óskum við eftir að skipaður verði starfshópur kjörinna fulltrúa, fulltrúa sviða og upplýsingatæknideildar til að útfæra verkefnið.
Pétur Hrafn Sigurðsson bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
Theodóra Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi BF Viðreisnar
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir bæjarfulltrúi Pírata
Bæjarráð vísar tillögunni til bæjarstjóra til afgreiðslu.