Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Afgreiðsla erinda og ákvarðanataka um hvaða erindi berast kjörnum fulltrúum. Fyrirspurn frá Pírötum, Samfylkingu og BF Viðreisn.

Málsnúmer: 1901409

Ferill máls

01

Skipulagsráð - 44. fundur

Frá bæjarritara, dags. 21. janúar, lagt fram svar við fyrirspurn um reglur og ferla sem gilda um afgreiðslu erinda sem berast til bæjarins.

02

Bæjarráð - 2943. fundur

Frá bæjarritara, dags. 21. janúar, lagt fram svar við fyrirspurn um reglur og ferla sem gilda um afgreiðslu erinda sem berast til bæjarins.

Lagt fram.

Pétur Hrafn Sigurðsson og Sigurbjörg Erla Egilsdóttir þakka fyrir framlagt svar. Theódóra S. Þorsteinsdóttir þakkar einnig framlagt svar.

03

Bæjarstjórn - 1188. fundur

Frá bæjarfulltrúum Pírata, Samfylkingar og BF Viðreisnar, óskað er eftir upplýsingum um þær reglur og ferla sem gilda um afgreiðslu erinda sem berast til bæjarins, frá því að erindi er mótttekið og þar til það er afgreitt, og um ákvörðun þess hvaða erindi berast kjörnum fulltrúum og hvaða erindi gera það ekki.

04

Bæjarráð - 2942. fundur

Bæjarráð vísar fyrirspurninni til bæjarritara til umsagnar.