Bæjarráð - 3076. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaðurBoðaði forföllDonata Honkowicz Bukowska - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllEinar Örn Þorvarðarson - varamaðurSat fundinn í staðinn
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
Starfsmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá bæjarlögmanni, lögð fram umsögn vegna framkominnar beiðni Dyljáar Ernu Eyjólfsdóttur um kaup á hluta af Geirlandi við Suðurlandsveg ásamt fasteignum.
Bæjarráð frestar erindinu.
Frá starfshópi um framtíðarhúsnæði fyrir Hjálparsveit skáta í Kópavogi, lögð fram skilagrein um valkosti nýs húsnæðis undir starfsemina.
Bæjarráð frestar erindinu.
03
Ályktun skólanefndar Menntaskólans í Kópavogi. Bygging íþróttahúss við Menntaskólann í Kópavogi.
Frá skólanefnd Menntaskólans í Kópavogi, dags. 14. desember 2021, lögð fram ályktun varðandi byggingu íþróttahúss við skólann.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs og sviðsstjóra menntasviðs.
04
Geirland við Suðurlandsveg. Ósk um viðræður um leiguafnot af landi Kópavogs til moldarvinnslu
Frá Garðvélum ehf., dags. 28. janúar, lagt fram erindi með ósk um viðræður um leiguafnot af landi Kópavogsbæjar til moldarvinnslu í Geirlandi við Suðurlandsveg.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.
Frá umboðsmanni barna, dags. 28. janúar 2022, lagt fram erindi þar sem sveitarfélög eru hvött til þess að virða rétt barna til þátttöku og áhrifa og til að innleiða að fullu ákvæði Barnasáttmálans í allri framkvæmd og ákvarðanatöku á vettvangi þeirra.
Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu sviðsstjóra stjórnsýslusviðs
Frá Smáragörðum ehf., dags. 28. janúar, lögð fram umsókn um lóðina Vallakór 8.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.
Kosning fulltrúa í heilbrigðisnefnd.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.
Fundargerð í fimm liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 17 liðum.
Lagt fram.
11.10 - 2201623 - Bláfjöll. Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir rannsóknarborholum.
Lagt fram erindi SSH dags. 20. janúar 2022 þar sem sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir borun á fjórum nýjum rannsóknarholum til grunnvatsmælinga á Bláfjallasvæðinu.
Fyrirhugaðar borholur eru vöktunarholur sem ætlað er að styrkja grunnvatnslíkan Vatnaskila með áherslu á Bláfjallasvæðið í tengslum við áform um framkvæmdir á skíðasvæðinu.
Með umsókninni fylgja skýringargögn.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
11.12 - 2110360 - Mánalind 8. Breytt deiliskipulag.
Lögð fram að nýju að lokinni kynningu tillaga Arnars Þórs Jónssonar arkitekts dags. 8. september 2021 fh. lóðarhafa að breyttu deiliskipulagi á lóðinni við Mánalind 8. Í breytingunni felst að komið verði fyrir geymslu á norðausturhluta lóðarinnar ásamt palli með pottasvæði og skjólvegg að hluta með timburbitum. Stærð geymslu er áætluð 27,5 m2 og hæð skjólveggs 2,4 m. Uppdráttur og skýringarmyndir í mkv. 1:1000 og 1:250 dags. 18. október 2021. Á fundi skipulagsráðs 18. október 2021 var samþykkt með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu að breyttu deiliskipulagi. Kynningartíma lauk 10. janúar 2022. Athugasemd barst á kynningartíma. Þá lögð fram umsgön skipulagsdeildar dags. 28. janúar 2022.
Skipulagsráð hafnar erindinu. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
11.14 - 2201689 - Fagraþing 2. Breytt deiliskipulag.
Lagt fram erindi Sigurðar Hallgrímssonar arkitekts f.h. lóðarhafa dags. 20. janúar 2022 þar sem sótt er um breytingu á deiliskipulagi lóðarinnar. Í breytingunni felst að í stað bílskýla verði lokaðar bílageymslur. Við það hækkar nýtingarhlutfall úr 0,43 í 0,49. Meðf. skýringaruppdráttur dags. nóvember 2021, mkv. 1:500.
Skipulagsráð samþykkir erindið með tilvísun í 3. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
11.15 - 2201219 - Öldusalir 2. Fjölgun bílastæða.
Lagt fram erindi lóðarhafa dags. 10. janúar 2022, óskað er eftir að fjölga bílastæðum úr þremur í fjögur og breikka bílastæði á lóðinni um 3 metra til vesturs.
Skipulagsráð hafnar erindinu með sex atkvæðum gegn atkvæði Kristins D. Gissurarsonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
11.3 - 2201276 - Nónsmári 1-7 og 9-15, breytt deiliskipulag.
Lagt fram að nýju erindi Hrólfs Karls Cela arkitekts, f.h. Nónhæðar ehf. dags. 11. janúar 2022 þar sem sótt er um breytingu á deiliskipulagi á lóðunum Nónsmára 1-7 og 9-15. Í breytingunni felst að á lóðinni Nónsmára 1-7 fjölgar íbúðum úr 55 í 60 og á lóðinni Nónsmára 9-15 fölgar íbúðum úr 45 í 50. Heildarfjölgun íbúða er alls 10 íbúðir. Þá er sótt um hækkun byggingarreita þannig að hús nr. 1 og 9 hækki úr tveimur hæðum í þrjár og hús númer 5, 7, 13 og 15 úr fjórum hæðum í fimm hæðir. Byggingarmagn á lóðunum eykst úr 15.600 m2 í 17.300 m2 og nýtingarhlutfall hækkar úr 0,5 í 0,6. Bílastæðum neðanjarðar fjölgar úr 82 í 104 en bílastæðum ofanjarðar fækkar úr 125 í 122. Uppdrættir í mkv. 1:2000 ásamt skýringarmyndum og greinargerð dags. 10. janúar 2022.
Á fundi skipulagsráðs 17. janúar 2022 var afgreiðslu erindisins frestað.
Þá lögð fram skuggavarpsgreining dags. 27. janúar 2022.
Skipulagsráð samþykkir með tilvísun í 1. mgr. 43. gr. skipulagslaga nr. 123/2010 að auglýsa framlagða tillögu með fjórum atkvæðum gegn atkvæði Hjördísar Ýrar Johnson og hjásetu Helgu Hauksdóttur og Einars Arnar Þorvarðarsonar. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bókun frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur:
Undirrituð samþykkir að fyrirliggjandi tillaga að breyttu deiliskipulagi verði auglýst. Í ljósi þess að ítarlegt samráð við íbúa næsta nágrennis fór fram á síðasta kjörtímabili, og lauk með málamiðlun, mun ég þó ekki samþykkja breytinguna komi fram andstaða frá þeim sem áttu hlut að máli á þeim tíma.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
- Nónhæð, Erindisbréf vegna deiliskipulagsbreytingu vegna Lóð B og C
- 0_XX_00_02 - Nónhæð, Deiliskipulagsbreyting LÓÐ B og C 11.JAN.2022 A3
- Nónhæð_Byggingaráform Lóð B og Lóð C 20220111
- Nónhæð-Skuggavarp frá Hrólfi Basalt
- Nónhæð. Breyting á skipulagi. Athugasemdir og ábendingar. Umsagnir. 17. nóvember 2017 og breytt 4. desember 2017
- 2201276, glærur 31. jan.´22.
11.9 - 2108968 - Ný Fossvallarétt. Umsókn um framkvæmdaleyfi.
Lagt fram að nýju erindi Sigurbjörns Þorbergssonar f.h. Fjáreigendafélags Reykjavíkur og Sauðfjáreigendafélags Kópavogs dags. 8. september 2021. Sótt er um framkvæmdaleyfi fyrir því að hefja byggingu á nýrrri lögrétt innan afréttar Seltjarnarhrepps hins forna, nú Kópavogsbæjar, Reykjavíkur og Seltjarnarneskaupstaðar, í landi Kópavogs. Fyrirhuguð staðsetning nýrrar réttar er nyrst í Mosunum, neðan Neðri Fóelluvatna, nálægt syðri bakka Heiðarbrúnarkvíslar og austan Búrfellslínu. Uppdráttur í mkv: 1:2000 dags. 5. október 2021.
Þá lagðar fram umsagnir umsagnaraðila ásamt minnispunktum um umhverfisáhrif dags. 26. janúar 2022.
Skipulagsráð samþykkir erindið. Vísað til afgreiðslu bæjarráðs og bæjarstjórnar.
Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.
- Umsókn um framkvæmdaleyfi fyrir nýrri Fossvallarétt á nýjum stað. Dags. 6. október 2021.
- Umsögn um framkvæmdaleyfi
- 07.12.2021_Umsögn Landsnets um nýja lögrétt innan afréttar Seltjarnarneshrepps hins forna í landi Kópavogs_undirrituð
- Svar Lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu
- Fossvallarétt, umsögn HHK, 29.11.2021
- Rafrænt svarbréf skipulagsnefndar
- 2022-Fossvallarétt
- Fossvallarett minnispunktar um umhverfisahrif
- 2108968, glærur 31. jan.´22.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
13
Ósk bæjarfulltrúa Péturs Hrafns Sigurðssonar um að málefni SÍK verði rædd og að fundargerðir verði lagðar fram í bæjarráði
Ósk frá bæjarfulltrúa Pétri Hrafni Sigurðssyni að málefni SÍK verði rædd og að allar fundargerðir SÍK frá upphafi verði lagðar fram í bæjarráði.
Bæjarráð frestar erindinu.