Beint í efni
Til baka í fundargerðir

Ósk um aðkomu Kópavogsbæjar að húsnæðismálum HSSK

Málsnúmer: 2008519

Ferill máls

01

Bæjarráð - 3131. fundur

Dags. 25.05.2023: lögð fram drög að samkomulagi milli Hjálparsveitar skáta í Kópavogi og Kópavogsbæjar og óskað eftir heimild bæjarstjóra til undirritunar.

Fundarhlé hófst kl. 10:21, fundi fram haldið kl. 10:30.

Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.

Bókun:

"Því er beint til bæjarstjóra að áður en umræða og afgreiðsla málsins fer fram í bæjarstjórn liggi eftirfarandi nauðsynlegar upplýsingar fyrir:

1. Hvenær lóðaleigusamningar við HSSK renna út. Hvernig áformað er að ráðstafa þeim lóðarréttindum, sem bærinn hyggst leysa til sín?

2. Heildarkostnað Kópavogsbæjar þ.m.t. áætlaðan kostnað af lántöku miðað við þau lánakjör sem nú bjóðast á markaði. Hvaða áhrif væntanleg lántaka hefur á skuldaviðmið og fjármögnun grunninnviða og uppbyggingu þjónustustofnana Kópvogsbæjar.

3. Hvort kolefnisáhrif niðurrifs steinbygginga á lóðinni hafi verið metin. Ef svo er ekki, hvenær á að meta þau og setja fram áætlun um hvernig lágmarka megi neikvæð loftslagsáhrif."

Frá bæjarlögmannni, dags. 30.05.2023, lagt fram svar við ofangreindri fyrirpurn.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur að veita bæjarstjóra heimild til undirritunar samkomulags milli Hálparsveitar skáta í Kópavogi og Kópavogsbæjar.

Fundarhlé hófst kl. 10:30, fundi fram haldið kl. 11:03.

02

Bæjarráð - 3130. fundur

Lögð fram drög að samkomulagi milli Hjálparsveitar skáta í Kópavogi og Kópavogsbæjar og óskað eftir heimild bæjarstjóra til undirritunar.

Fundarhlé hófst kl. 10:21, fundi fram haldið kl. 10:30.

Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.

Bókun:

"Því er beint til bæjarstjóra að áður en umræða og afgreiðsla málsins fer fram í bæjarstjórn liggi eftirfarandi nauðsynlegar upplýsingar fyrir:

1. Hvenær lóðaleigusamningar við HSSK renna út. Hvernig áformað er að ráðstafa þeim lóðarréttindum, sem bærinn hyggst leysa til sín?

2. Heildarkostnað Kópavogsbæjar þ.m.t. áætlaðan kostnað af lántöku miðað við þau lánakjör sem nú bjóðast á markaði. Hvaða áhrif væntanleg lántaka hefur á skuldaviðmið og fjármögnun grunninnviða og uppbyggingu þjónustustofnana Kópvogsbæjar.

3. Hvort kolefnisáhrif niðurrifs steinbygginga á lóðinni hafi verið metin. Ef svo er ekki, hvenær á að meta þau og setja fram áætlun um hvernig lágmarka megi neikvæð loftslagsáhrif."

Helga Jónsdóttir

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Bergljót Kristinsdóttir

03

Bæjarstjórn - 1262. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags 22.08.2022, lögð fram umsögn varðandi beiðni HSSK um nýtt húsnæði. Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum 01.09.2022.

04

Bæjarstjórn - 1262. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags 22.08.2022, lögð fram umsögn varðandi beiðni HSSK um nýtt húsnæði. Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum 01.09.2022.

Bæjarstjórn staðfestir afgreiðslu bæjarráðs með 9 atkvæðum og hjásetu Helgu Jónsdóttur og Kolbeins Reginssonar.

05

Bæjarráð - 3098. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags 22.08.2022, lögð fram umsögn varðandi beiðni HSSK um nýtt húsnæði. Bæjarráð frestaði erindinu á fundi sínum 01.09.2022.

Bæjarráð samþykkir með fjórum atkvæðum að fela sviðsstjóra umhverfissviðs að ganga frá samningi við HSSK ásamt verk- og greiðsluætlun. Kaupsamningur verði lagður fyrir bæjarráð og bæjarstjórn til samþykktar. Helga Jónsdóttir greiddi atkvæði á móti.

Bókun:

"1. Valkostagreining sem lögð er fram hverfist einkum um verðmæti byggingarréttar, þar sem deiliskipulagstillaga er á byrjunarstigi og hefur ekki verið samþykkt í bæjarstjórn Kópavogs. Fram kemur að breytingar í skipulagsferlinu muni hafa áhrif á verðmat byggingarréttarins.

2. Ekki liggur fyrir hversu mikið land þarf vegna Borgarlínunnar.

3. Í fyrirliggjandi greiningum liggur ekki fyrir hvernig nauðsynleg bátaaðstaða verður leyst. Hvorki liggur fyrir hvar við höfnina á að koma fyrir bátaskýli fyrir HSSK né heldur hvaða kostnaður fylgi þeirri uppbyggingu. Ekki er forsvaranlegt að ganga til samninga án þess að búið sé að leysa það mál og hvaða kostnað af því leiði.

Undirrituð telur ljóst að af hálfu bæjaryfirvalda sé málið vanbúið til ákvörðunar."

Helga Jónsdóttir

Bókun:

"Eftir mikla samráðsvinnu er það niðurstaðan að hagsmunum Kópavogsbæjar og HSSK sé best borgið með því að samþykkja erindið. Þar með er óvissu í framtíðaráformum Hjálparsveitarinnar tryggð og starfseminni fundinn staður í nýju húsnæði."

Orri Vignir Hlöðversson, Hjördís Ýr Johnson, Sigvaldi Egill Lárusson.

Bókun:

"Undirrituð telur þá tillögu sem hér liggur fyrir farsæla fyrir bæði Kópavogsbæ og Hjálpasveit skáta í Kópavogi. Stuðningur við erindið felur ekki í sér stuðning við þá skipulagstillögu sem liggur fyrir um reit nr. 13."

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

06

Bæjarráð - 3097. fundur

Frá sviðsstjóra umhverfissviðs, dags 22.08.2022, lögð fram umsögn varðandi beiðni HSSK um nýtt húsnæði.

Bæjarráð frestar erindinu til frekari gagnaöflunar.

07

Bæjarráð - 3092. fundur

Frá HSSK, dags. 14.06.2022, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir aðkomu Kópavogsbæjar að nýju húsnæði að Tónahvarfi 8.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til umsagnar sviðsstjóra umhverfissviðs.

08

Bæjarstjórn - 1253. fundur

Frá starfshópi um framtíðarhúsnæði fyrir Hjálparsveit skáta í Kópavogi, lögð fram skilagrein um valkosti nýs húsnæðis undir starfsemina. Bæjarráð frestaði erindinu 03.02.2022.

Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum að fela bæjarstjóra að ganga til samninga HSSK með vísan til framlagðar viljayfirlýsingar.

Bókun:

Undirrituð taka undir niðurstöðu frá starfshópi um framtíðarhúsnæði fyrir Hjálparsveit skáta í Kópavogi en taka ekki undir forsendur í útreikningum sem byggðir eru á skipulagi fyrir reit nr.13.

Theodóra S. Þorsteinsdóttir

Einar Örn Þorvarðarson

09

Bæjarráð - 3080. fundur

Frá starfshópi um framtíðarhúsnæði fyrir Hjálparsveit skáta í Kópavogi, lögð fram skilagrein um valkosti nýs húsnæðis undir starfsemina. Bæjarráð frestaði erindinu 03.02.2022.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

10

Bæjarráð - 3076. fundur

Frá starfshópi um framtíðarhúsnæði fyrir Hjálparsveit skáta í Kópavogi, lögð fram skilagrein um valkosti nýs húsnæðis undir starfsemina.

Bæjarráð frestar erindinu.

11

Bæjarráð - 3039. fundur

Frá bæjarstjóra, dags. 8. mars, lögð fram tillaga varðandi húsnæðismál Hjálparsveitar skáta í Kópavogi um byggingu nýs húsnæðis að Tónahvarfi 8. Lagt er til að sviðsstjóra umhverfissviðs og skipulagsstjóra verði falið að fara fyrir starfshópi, ásamt fulltrúum HSSK, að gera tillögu til bæjarráðs um hvernig best sé að standa að slíkri byggingu ásamt því að vinna tillögu um hvernig sé hægt að leysa aðstöðu fyrir bátadeild HSSK í nágrenni hafnarinnar.

Pétur H. Sigurðsson vék af fundi og Bergljót Kristinsdóttir tók sæti í hans stað.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagða tillögu um skipan starfshóps skv. leið 3, ásamt tveimur fulltrúum úr bæjarstjórn.

12

Bæjarstjórn - 1220. fundur

Frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi, dags. 14. ágúst, lagt fram erindi með ósk um aðkomu bæjarins að húsnæðismálum félagsins á Kársnesi.

Fundargerð í 12 liðum.

13

Bæjarstjórn - 1219. fundur

Frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi, dags. 14. ágúst, lagt fram erindi með ósk um aðkomu bæjarins að húsnæðismálum félagsins á Kársnesi.

inngangur

14

Forsætisnefnd - 160. fundur

Frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi, dags. 14. ágúst, lagt fram erindi með ósk um aðkomu bæjarins að húsnæðismálum félagsins á Kársnesi.

Fundargerð í 17 liðum.

15

Bæjarráð - 3011. fundur

Frá Hjálparsveit skáta í Kópavogi, dags. 14. ágúst, lagt fram erindi með ósk um aðkomu bæjarins að húsnæðismálum félagsins á Kársnesi.

Bæjarráð vísar erindinu til bæjarastjóra til viðræðna við HSSK.