Beint í efni
Til baka í nefndaryfirlit

Bæjarráð - 3184. fundur

í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2

Mætt til fundar

Nefndarmenn

  • Orri Vignir Hlöðversson - formaður
  • Hjördís Ýr Johnson - varaformaður
  • Elísabet Berglind Sveinsdóttir - aðalmaður
  • Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
  • Helga Jónsdóttir - aðalmaður
    Boðaði forföll
    Helga Jónsdóttir - varamaður
    Sat fundinn í staðinn
  • Bergljót Kristinsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
  • Ásdís Kristjánsdóttir - bæjarstjóri

Starfsmenn

  • Pálmi Þór Másson - bæjarritari

Ritari

  • Pálmi Þór Másson

Dagskrá fundar

01

Tekjuskattsundanþága byggðasamlaga- breytt rekstrarform efnahaglegrar starfsemi Sorpu bs.

Frá SSH, dags. 16.08.2024, lagt fram erindi varðandi tekjuskattsundanþágu byggðasamlaga- breytt rekstrarform efnahaglegrar starfsemi Sorpu bs. Bæjarrráð frestaði málinu þann 22.08.2024 til næsta fundar og óskaði eftir því að fulltrúar Sorpu mæti til fundarins.

Með vísan til niðurstöðu í máli ESA nr. 81738 og fyrirliggjandi tillögu SSH um viðbrög við niðurstöðunni, samþykkir bæjarráð með fimm atkvæðum fyrir sitt leyti að efnahagsleg starfsemi Sorpu bs. verði færð í félag, eða eftir atvikum félög, með takmarkaðri ábyrgð fyrir. Bæjarráð vísar málinu jafnframt til staðfestingar bæjarstjórnar.

02

Útboð - Hugbúnaður fyrir viðhald og viðhaldssögu fasteigna

Frá deildarstjóra innkaupadeildar, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að bjóða út innkaup á hugbúnaði til utanumhalds á viðhaldi og viðhaldssögu allra fasteigna Kópavogsbæjar og leigukerfis fyrir félagslegt húsnæði.

Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.

Bókun:

"Undirrituð óskar eftir eftirfarandi gögnum:

Útboðsgögnum, þarfagreiningu, markaðskönnun og þeim minnisblöðum sem til eru hjá Kópavogsbæ er tengjast undirbúningi málsins."

Theódóra S. Þorsteinsdóttir

03

Uppfærsla samgöngusáttmálans

Frá SSH, dags. 21.08.2024, lagður fram uppfærður samgöngusáttmáli. Fyrirligggjandi eru gögn númeruð frá 1-4 sem óskað er eftir að verði rædd og afgreidd í bæjarráði og bæjarstjórn Kópavogs.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

04

Markavegur 7. Beiðni um skil á lóðarréttindum.

Frá bæjarlögmanni. Umsögn vegna beiðni lóðarhafa um að skila hesthúsalóð, Markavegi 7.

Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.

05

Fyrirspurn frá vara bæjarfulltrúa Pírata, Indriða Inga Stefánssonar um kjörgengi fulltrúa Pírata í Lista- og Menningarráði.

Frá bæjarlögmanni, dags. 19.08.2024, lagt fram svar við fyrirspurn varabæjarfulltrúa Pírata, um kjörgengi fulltrúa Pírata í lista- og menningarráði.

Bæjarráð vísar fyrirspurninni að nýju til frekari skoðunar.

06

Uppsalir 3, Lindakirkja. Umsagnarbeiðni vegna umsóknar um tækifærisleyfi

Frá lögfræðideild, dags. 26.08.2024, lögð fram umsögn um umsókn Þjóðkirkjunnar, kt. 460169-6909, um tækifærisleyfi til að mega halda kirkjudaga (hátíð kirkjufólks) þann 31. ágúst 2024, frá kl. 09:00 til kl. 17:00, íLindakirkju, Uppsölum 3, 201 Kópavogi, skv. 17. gr. laga nr. 85/2007 um veitingastaði,gististaði og skemmtanahald og 30. gr. rgl. nr. 1277/2016. Samkvæmt 1. tl. 4. mgr. 10. gr. laga nr. 85/2007 staðfestir sveitarstjórn sem umsagnaraðili að

staðsetning staðar sem umsókn lýtur að sé innan þeirra marka sem reglur og skipulag

sveitarfélagsins segja til um. Staðsetning er í samræmi við gildandi skipulag og afgreiðslutími er í samræmi við ákvæði 4.

mgr. 25. gr. lögreglusamþykktar fyrir Kópavogsbæ nr. 675/2015

Bæjarráð veitir jákvæða umsögn í samræmi við umsögn lögfræðideildar.

07

Vetrarþjónusta stofnleiðir

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 26.08.2024, lagðar fram niðurstöður útboðs á vetrarþjónustu stofnleiða í Kópavogi.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda Gröfu og grjót ehf.

08

Vetrarþjónusta göngu- og hjólaleiðir

Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 26.08.2024, lagðar fram niðurstöður útboðs á vetrarþjónustu göngu- og hjólaleiða í Kópavogi.

Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að gengið verði til samninga við lægstbjóðanda í samræmi við niðurstöðu útboðsins.

09

Sorphirða í Kópavogi - staða mála

Deildarstjóri gatnadeildar fer yfir stöðuna í sorphirðu í Kópavogi eftir að nýr aðili tók verkið að sér. Erindi að beiðni formanns bæjarráðs.

Umræður.

10

Viðfangsefni stýrihóps um framtíðarstaðsetningu íþróttamiðstöðvar skotíþrótta

Frá SSH, dags. 14.08.2024, lagt fram erindi varðandi framtíðarstaðsetningu íþróttamiðstöðvar skotíþrótta. Óskað er eftir að hagaðilar sendi inn ábendingar eigi síðar en 4. september nk.

Bæjarráð vísar erindinu til afgreiðslu sviðsstjóra umhverfissviðs.

11

Velferðarráð - 135. fundur frá 26.08.2024

Fundargerð í fjórum liðum.

Lagt fram.

12

Fundargerð 582. fundar stjórnar SSH frá 21.08.2024

Fundargerð 582. fundar stjórnar SSH frá 21.08.2024.

Lagt fram.

13

Innkaupastefna og innkaupareglur - ósk um upplýsingar

Frá bæjarfulltrúa Pírata og Viðreisnar, lagt fram svohljóðandi erindi:

"Innkaupareglur Kópavogsbæjar voru samþykktar á fundi bæjarstjórnar þann 22.mars 2022. Reglurnar kveða á um að öll innkaup yfir 500 þúsund kr. án gildandi samnings skuli fara í formlegt innkaupaferli í samráði við innkaupadeild sem metur viðeigandi innkaupaleið. Undirritaðar óska eftir upplýsingum um þau innkaup á vörum og þjónustu yfir 500 þúsund kr. sem kunna að hafa verið gerð án aðkomu innkaupadeildar, ástæðu þess að ekki var farið að innkaupareglum bæjarins í þeim tilfellum og hvar slík undanþáguheimild er tilgreind.

Sigurbjörg Erla Egilsdóttir

Theodóra S. Þorsteinsdóttir

Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra fjármálasviðs.

14

Afgreiðslur byggingarfulltrúa - 400. fundur frá 23.08.2024

Lagt fram.


14.1 - 24062738 - Birkigrund 28 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Steinn Thoroddsen Halldórsson, Birkigrund 28, Kópavogi sækir um leyfi fyrir að byggja bílskúr að Birkigrund 28.
Teikning: Haraldur Ingvarssson.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 23. ágúst 2024. Samrýmist lögum nr. 160/2010

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.


14.2 - 2209943 - Boðaþing 11-13 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Framkvæmdasýslan - Ríkiseignir, Katrínartú 6, Reykjavík sækir um leyfi fyrir að fá samþykktar reyndarteikningar að Boðaþingi 11-13.
Teikning: Oddur Kr. Finnbjarnarson.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 23. ágúst 2024. Samrýmist lögum nr. 160/2010

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.


14.3 - 24072241 - Dalsmári 5 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Kópavogsbær, Digranesvegur 1, Kópavogi sækir um leyfi fyrir að byggja tæknihús að Dalsmári 5.
Teikning: Helgi Már Halldórsson.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 23. ágúst 2024. Samrýmist lögum nr. 160/2010

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.


14.4 - 2408705 - Lyngbrekka 20 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Guðbjörg Andrésdóttir, Lyngbrekka 20, Kópavogi sækir um leyfi fyrir að setja svalir á bílskúr að Lyngbrekku 20.
Teikning: Mardís Malla Andersen.

Byggingarfulltrúi vísar umsókninni 23. ágúst 2024 til skipulagsráðs með tilvísun í 44. gr. skipulagslaga nr. 123/2010

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.


14.5 - 24053534 - Landsendi 31 - Umsókn um byggingaráform og byggingarleyfi

Kópavogsbær, Digranesvegur 1, Kópavogi sækir um leyfi fyrir að byggja miðlunartank.
Teikning: Andri Martin Sigurðsson.

Byggingarfulltrúi samþykkir erindið 23. ágúst 2024. Samrýmist lögum nr. 160/2010

Bæjarráð vísar afgreiðslu málsins til bæjarstjórnar.