Innkaupastefna Kópavogsbæjar
Málsnúmer: 2203504
Ferill máls
01
Innkaupanefnd - 4. fundur
Innkaupastefna Kópavogsbæjar frá 2022 lögð fram til kynningar og umræðu.
Lagt fram og umræður.
02
Innkaupanefnd - 3. fundur
Yfirferð á drögum að innkaupareglum og gildandi innkaupstefnu. Tekið á móti athugasemdum og ábendingum frá nefndarfólki.
Lagt fram. Ákveðið að beina athyglinni að innkaupastefnunni til að byrja með og fjalla frekar um hana á næsta fundi.
03
Innkaupanefnd - 2. fundur
Drög að innkaupareglum lögð fram til samþykktar. Innkaupastefna lögð fram til rýnis og til ákvörðunar um framlengingu eða tekin til endurskoðunar.
Lagt fram. Sigurbjörg Erla Egilsdóttir fer af fundi kl. 16:46.
04
Innkaupanefnd - 1. fundur
Kynning á innkaupadeild og fræðsla um opinber innkaup þ.m.t.:
- Yfirferð innkaupastefnu
- Kynning á drögum að innkaupareglum (fyrir næsta fund)
- Lög um opinber innkaup
- Lög um framkvæmd útboða
- Reglugerð um viðmiðunarfjárhæðir
- Kynning á úrskurðum kærunefndar útboðsmála
- Siðareglur kjörinna fulltrúa
- Opinber innkaupaferli
- Yfirlit yfir samninga
Starfsemi innkaupadeildar kynnt og farið yfir lög og reglur opinberra innkaupa. Drög að endurskoðuðum innkaupareglum lögð fram til umsagnar.
05
Bæjarráð - 3188. fundur
Frá deildarstjóra innkaupadeildar, dags. 19.09.2024, lagt fram svar við fyrirspurn bæjarfulltrúa Pírata og Viðreisnar um innkaupastefnu og innkaupareglur.
Lagt fram.
Bæjarráð samþykkir að fela innkaupadeild að hefja endurskoðun á innkaupareglum Kópavogsbæjar og koma með tillögu til bæjarráðs þess efnis.
06
Bæjarráð - 3184. fundur
Frá bæjarfulltrúa Pírata og Viðreisnar, lagt fram svohljóðandi erindi:
"Innkaupareglur Kópavogsbæjar voru samþykktar á fundi bæjarstjórnar þann 22.mars 2022. Reglurnar kveða á um að öll innkaup yfir 500 þúsund kr. án gildandi samnings skuli fara í formlegt innkaupaferli í samráði við innkaupadeild sem metur viðeigandi innkaupaleið. Undirritaðar óska eftir upplýsingum um þau innkaup á vörum og þjónustu yfir 500 þúsund kr. sem kunna að hafa verið gerð án aðkomu innkaupadeildar, ástæðu þess að ekki var farið að innkaupareglum bæjarins í þeim tilfellum og hvar slík undanþáguheimild er tilgreind.
Sigurbjörg Erla Egilsdóttir
Theodóra S. Þorsteinsdóttir
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar sviðsstjóra fjármálasviðs.
07
Bæjarstjórn - 1254. fundur
Frá deildarstjóra innkaupadeildar, lögð fram drög að innkaupareglum og innkaupastefnu fyrir Kópavogsbæ. Bæjarráð frestaði erindinu á síðasta fundi.
Bæjarstjórn samþykkir með 11 atkvæðum framlagðar innkaupareglur og innkaupastefnu.
08
Bæjarráð - 3082. fundur
Frá deildarstjóra innkaupadeildar, lögð fram drög að innkaupareglum og innkaupastefnu fyrir Kópavogsbæ. Bæjarráð frestaði erindinu á síðasta fundi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa erindinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
09
Bæjarráð - 3081. fundur
Frá deildarstjóra innkaupadeildar, lögð fram drög að innkaupareglum og innkaupastefnu fyrir Kópavogsbæ.
Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.