Bæjarráð - 3081. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - áheyrnarfulltrúi
- Margrét Friðriksdóttir - varamaður
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
Starfsmenn
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá deildarstjóra gatnadeildar, dags. 03.03.2022, lagt fram minnisblað um útskiptingu götuljósakerfis ásamt kostnaðar- og ábatagreiningu.
Lagt fram og vísað til gerðar fjárhagsáætlunar.
Frá bæjarlögmanni, lagðar fram til umræðu og samþykktar drög að reglum um leyfi til reksturs leikskóla.
Bæjarráð vísar málinu til afgreiðslu bæjarstjórnar.
Frá verkefnastjóra umhverfissviðs, dags. 2. mars 2022, lagðar fram tillögur um laun og vinnutíma 14-17 ára ungmenna sumarið 2022.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagðar tillögur.
Frá sviðsstjórum mennta- og umhverfissviðs, dags. 7. mars 2022, lagðar fram tillögur í fjórum liðum að fjölgun leikskólaplássa fyrir haustið 2022, auk þess sem óskað er eftir að bæjarráð veiti 2 m.kr. fjárheimild til auglýsingaherferðar vegna mönnunar á leikskólum bæjarins.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum framlagt erindi og felur sviðsstjóra menntasviðs og sviðsstjóra umhverfissviðs að leggja fram viðauka við fjárhagsáætlun í næsta bæjarráð.
05
Bæjarfulltrúi Theódóra S. Þorsteinsdóttir óskar eftir að settar verði upp nýjar sviðsmyndir út frá áhrifum á þróun verðbólgu á fjárhagsáætlun Kópavogsbæjar
Frá fjármálastjóra, dags. í mars 2022, lagt fram svar við erindi bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur frá 24. febrúar sl.
Kynning.
Karen E. Halldórsdóttir vék af fundi kl. 11:13 og tók Margrét Friðriksdóttir sæti í hennar stað.
Hjördís Ýr Johnson vék af fundi kl. 11:13 og tók Ármann Kr. Ólafsson sæti í hennar stað.
Frá deildarstjóra innkaupadeildar, lögð fram drög að innkaupareglum og innkaupastefnu fyrir Kópavogsbæ.
Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.
Lagðar fram upplýsingar um stöðu framkvæmda á byggingu Kársnesskóla.
Kynning.
Frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga, dags. 28. febrúar 2022, lagðar fram upplýsingar um upphafsfund verkefnisins "Samtaka um hringrásarhagkerfið".
Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar.
Kynning.
09
Bókun bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga á 350. fundi bæjarráðs vegna frumvarps til laga um lagningu Suðurnesjalínu
Frá bæjarráði Sveitarfélagsins Voga, dags. 2. mars 2022, lögð fram bókun bæjarráðs Sveitarfélagsins Voga sem er áskorun til allra sveitarfélaga í landinu er varðar Suðurnesjalínu 2.
Óskað er eftir að bókunin verði tekin til umfjöllunar í sveitarstjórn, sem og að hún verði send öllum kjörnum fulltrúum til kynningar.
Lagt fram.
Bókun:
"Undirritaður tekur undir bókun sveitafélagsins Voga er varðar sjálfsákvörðunarrétt sveitarfélaga í skipulagsmálum."
Pétur Hrafn Sigurðsson
bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar
Frá Heklu hf., dags. 1. mars 2022, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir lóð fyrir höfuðstöðvar Heklu hf. í Kópavogi.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málinu til umsagnar bæjarstjóra.
11
Til umsagnar tillaga til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum, 51. mál
Frá velferðarnefnd Alþingis, dags. 2. mars 2022, lagt fram sendir til umsagnar tillaga til þingsályktunar um búsetuöryggi í dvalar- og hjúkrunarrýmum, 51. mál.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að vísa málnu til bæjarlögmanns.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 1 lið.
Lagt fram.
Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í níu liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 10 liðum.
Lagt fram.
18
Bæjarfulltrúi Theodóra S. Þorsteinsdóttur óskar eftir að svæðisskipulagsstjóri fari yfir húsnæðisþróun á höfuðborgarsvæðinu m.t.t. svæðisskipulagsins
Bæjarfulltrúi Theodóra S. Þorsteinsdóttur óskar eftir því að fá svæðisskipulagsstjóra á fund bæjarráðs til að fara yfir húsnæðisþróunina á höfuðborgarsvæðinu og velta því upp hvort við séum að ná þeim markmiðum sem við lögðum af stað með 2015 með svæðisskipulaginu.
Bæjarráð frestar erindinu til næsta fundar og óskar eftir að fá svæðisskipulagsstjóra á sinn fund.