Bæjarráð - 3069. fundur
í bæjarstjórnarsal, Hábraut 2
Mætt til fundar
Nefndarmenn
- Birkir Jón Jónsson - formaður
- Karen Elísabet S Halldórsdóttir - varaformaður
- Hjördís Ýr Johnson - aðalmaður
- Pétur Hrafn Sigurðsson - aðalmaður
- Theódóra S Þorsteinsdóttir - aðalmaður
- Sigurbjörg Erla Egilsdóttir - aðalmaðurBoðaði forföllÁsmundur Alma Guðjónsson - áheyrnarfulltrúiSat fundinn í staðinn
Starfsmenn
- Ármann Kristinn Ólafsson - bæjarstjóri
- Pálmi Þór Másson - bæjarritari
Ritari
- Pálmi Þór Másson
Dagskrá fundar
Frá rekstrarstjóra menntasviðs, dags. 29. nóvember 2021, lagt fram minnisblað varðandi afslátt af þjónustugjöldum vegna Covid-19. Óskað er eftir samþykkt bæjarráðs til að veita afslátt af þjónustugjöldum leikskóla, grunnskóla og frístundaheimila í þeim tilvikum sem:
a) þjónusta leik- og/eða grunnskóla fellur niður eða skerðist vegna veikinda eða sóttkvíar starfsmanna eða af öðrum sambærilegum ástæðum verða gjöld fyrir viðkomandi þjónustu leiðrétt í samræmi við hlutfall
skerðingarinnar.
b) sem börn geta ekki nýtt sér þjónustu vegna sóttkvíar eða veikinda/einangrunar vegna Covid-19 verða gjöld leiðrétt hlutfallslega.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum að veita umbeðna afslætti.
Frá deildarstjóra gatnadeildar og deildarstjóra innkaupadeildar, dags. 29. nóvember, lagt fram erindi þar sem óskað er eftir heimild bæjarráðs til að bjóða út götusópun 2022-2025.
Bæjarráð samþykktir umbeðna heimild með fimm atkvæðum.
Frá lögfræðideild, dags. 30. nóvember 2021, lögð fram beiðni fyrir hönd lóðarhafa Turnarhvarfs 6, Opus fasteignafélags ehf., kt. 690103-2490, um heimild til að framselja lóðina.
Bæjarráð samþykkir með fimm atkvæðum umbeðið framsal.
Fundargerð í einum lið.
Lagt fram.
Fundargerð í tveimur liðum.
Lagt fram.
Fundagerð í þremur liðum.
Fundargerð í fjórum liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í 17 liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í níu liðum.
Lagt fram.
Fundargerð í sex liðum.
Lagt fram.
11
Theódóra S. Þorsteinsdóttir bæjarfulltrúi óskar eftir upplýsingum um stöðuna á nýju aðalskipulagi Kópavogs
Frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur, dags. 30. nóvember.
Óskað er eftir upplýsingum um stöðuna á nýju aðalskipulagi Kópavogs.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar skipulagsstjóra.
12
Theódóra S. Þorsteindsóttir bæjarfulltrúi óskar eftir umræðu um hvernig samráði um leiðarval - valkostagreiningu á legu annarrar lotu Borgarlínu í Kópavogi verði háttað
Frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur, dags. 30. nóvember. Óskað eftir umræðu um hvernig samráði um leiðarvalvalkostagreiningu á legu annarrar lotu Borgarlínu í Kópavogi verði háttað.
Bæjarráð vísar málinu til vinnufundar bæjarstjórnar.
Frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur, dags. 30. nóvember 2021. Óskað eftir upplýsingum um hvar sú vinna við loflagsstefnu er stödd.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar sviðsstjóra stjórnsýslusviðs.
14
Tillaga bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um að Kópavogsbær setji sér reglur um úthlutun atvinnuhúsalóða
Frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur, dags. 30. nóvember, lögð fram tillaga um að Kópavogsbær setji sér reglur um úthlutun atvinnuhúsalóða.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar bæjarritara.
15
Innri endurskoðun Kópavogsbæjar. Tillaga um að Kópavogsbær taki upp innri endurskoðun á starfsemi sinni og að bæjarráð samþykki útboðverðkönnun á innri endurskoðun.
Óska eftir upplýsingum um stöðuna á tillögu frá BF Viðreisn er varðar Innri endurskoðun Kópavogsbæjar. Mál nr. 2008064. Tillaga um að Kópavogsbær taki upp innri endurskoðun á starfsemi sinni? Afgreiðsla málsins: ?Bæjarráð felur bæjarstjóra að setja upp valkosti sem tengjast innri endurskoðun hjá Kópavogsbæ sem hann leggur fyrir bæjarráð.
Bæjarstjóri gerði grein fyrir stöðu málsins.