Tillaga bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur um að Kópavogsbær setji sér reglur um úthlutun atvinnuhúsalóða
Málsnúmer: 21111687
Ferill máls
01
Bæjarráð - 3145. fundur
Frá bæjarlögmanni, lagt fram svar við fyrirspurn varðandi reglur um úthlutun atvinnuhúsalóða.
Lagt fram.
Bókun:
"Undirritaðar hafa frá árinu 2021 kallað eftir því að settar verið úthlutunarreglur um atvinnuhúsalóðir í Kópavogi. Þrátt fyrir ítrekanir hafa umsagnir, sem óskað hefur verið eftir, ekki borist. Nú kemur fram að hafin sé heildarendurskoðun á úthlutunarreglum fyrir bæði íbúða- og atvinnuhúsalóðir. Undirritaðar ítreka ósk sína um umsögn og að bæjarráð taki í framhaldinu ákvörðun um endurskoðun úthlutunarreglna."
Theódóra S. Þorsteinsdóttir
Sigurbjörg E. Egilsdóttir
02
Bæjarráð - 3143. fundur
Frá Sigurbjörgu Erlu Egilsdóttur og Theódóru S. Þorsteinsdóttur bæjarfulltrúum, lögð fram ítrekun á fyrri tillögum um að hefja vinnu við að semja reglur um úthlutun á byggingarrétti fyrir atvinnuhúsnæði sem bæjarráð vísaði til umsagnar bæjarritara 2. desember 2021.
Bæjarráð vísar erindinu til umsagnar bæjarritara.
03
Bæjarráð - 3069. fundur
Frá bæjarfulltrúa Theódóru S. Þorsteinsdóttur, dags. 30. nóvember, lögð fram tillaga um að Kópavogsbær setji sér reglur um úthlutun atvinnuhúsalóða.
Bæjarráð vísar málinu til umsagnar bæjarritara.